Kröfu Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja, um að rannsókn héraðssaksóknara á hendur henni yrði úrskurðuð ólögmæt og felld niður, var hafnað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Arna hefur haft réttarstöðu sakbornings í tæp þrjú ár vegna meintra brota í Namibíu en hún byggði kröfu sína annars vegar á tímalengd málsins, en það hefur staðið yfir í tæp þrjú ár. Arna kvaðst ekki hafa heyrt frá héraðssaksóknara í 17 mánuði, þegar hún lagði fram kröfuna í janúar, sem væri í bága við sakamálalög.
Hins vegar byggði Arna kröfu sína á því að rannsóknin hefði verið í höndum Finns Þórs Vilhjálmssonar, en hann er bróðir Inga Freys Vilhjálmssonar, blaðamanns á Heimildinni og hefur fjallað mikið um málið.
Halldór Brynjar Halldórsson, lögfræðingur Örnu, hyggst kæra úrskurðinn til Landsréttar og væntir þar ólíkrar niðurstöðu í ljósi nýrra upplýsinga, sem ekki lágu fyrir þegar málið var flutt fyrir héraði.
Hann segir niðurstöðu úrskurðarins að stærstum hluta hafa ráðist af því að Ingi Freyr hafi ekki haft persónulegra hagsmuna að gæta heldur hafi eingöngu skrifað fréttir um málið, sem sé partur af starfi hans.
Halldór segir það þó liggja skýrt fyrir í ljósi frétta dagsins, að Ingi Freyr hafi persónulegra hagsmuna að gæta, en hann hefur hlotið réttarstöðu sakbornings í rannsókn á umfjöllun fjölmiðla um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja.
„Hann hefur réttarstöðu sakbornings í rannsókn þar sem skjólstæðingur minn hefur stöðu brotaþola. Með öðrum orðum, hann liggur undir grun um refsivert afbrot í garð skjólstæðings míns. Persónulegri verða hagsmunirnir vart.“
Halldór bætir við að það sé „umhugsunarefni að embætti Héraðssaksóknara skuli ekki telja rétt að fella niður rannsóknina á hendur skjólstæðingi mínum að eigin frumkvæði, eins og nú er komið, enda ljóst að rannsóknin getur með engu móti haft nokkurs konar yfirbragð eða ásýnd hlutleysis við þessar aðstæður“.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.11.24 | 564,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.11.24 | 656,67 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.11.24 | 374,69 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.11.24 | 341,33 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.11.24 | 315,48 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.11.24 | 337,30 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.11.24 | 393,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 4.050 kg |
Þorskur | 3.889 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 7.943 kg |
21.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 1.449 kg |
Þorskur | 919 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 3 kg |
Samtals | 2.375 kg |
21.11.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 577 kg |
Skarkoli | 303 kg |
Þorskur | 97 kg |
Sandkoli | 12 kg |
Þykkvalúra | 8 kg |
Karfi | 5 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Samtals | 1.007 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 21.11.24 | 564,58 kr/kg |
Þorskur, slægður | 21.11.24 | 656,67 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 21.11.24 | 374,69 kr/kg |
Ýsa, slægð | 21.11.24 | 341,33 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 21.11.24 | 315,48 kr/kg |
Ufsi, slægður | 21.11.24 | 337,30 kr/kg |
Djúpkarfi | 8.11.24 | 179,00 kr/kg |
Gullkarfi | 21.11.24 | 393,63 kr/kg |
Litli karfi | 22.10.24 | 15,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 15.11.24 | 103,00 kr/kg |
21.11.24 Hlökk ST 66 Landbeitt lína | |
---|---|
Ýsa | 4.050 kg |
Þorskur | 3.889 kg |
Steinbítur | 4 kg |
Samtals | 7.943 kg |
21.11.24 Fanney EA 48 Línutrekt | |
---|---|
Ýsa | 1.449 kg |
Þorskur | 919 kg |
Hlýri | 4 kg |
Steinbítur | 3 kg |
Samtals | 2.375 kg |
21.11.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót | |
---|---|
Ýsa | 577 kg |
Skarkoli | 303 kg |
Þorskur | 97 kg |
Sandkoli | 12 kg |
Þykkvalúra | 8 kg |
Karfi | 5 kg |
Steinbítur | 5 kg |
Samtals | 1.007 kg |