„Teymið okkar hefur unnið hörðum höndum að því að þróa smáforrit (app) sem uppfyllir þarfir íslenskra sjómanna og útgerða. Afladagbókin er einungis fyrsta skrefið í aukinni þjónustu við íslenskar útgerðir,“ segir Vilhjálmur Hallgrímsson eigandi Fisheries Technologies ehf. í fréttatilkynningu.
Fyrirtækið hefur gefið út smáforritið Afladagbókin sinnir utanumhaldi um veiðiferðir og aflabrögð. Afladagbókin er sögð vera hönnuð með þarfir íslenskra smábátasjómanna í huga og fylgir þjónustan þeim úr höfn og heim aftur.
„Afladagbókinni er í fyrstu ætlað að einfalda afladagbókarskil til opinberra aðila en hún er miklu meira en það. Í Afladagbókinni geta úgerðir fengið yfirsýn yfir allar veiðiferðir og aflabrögð. Afladagbókin er í stöðugri þróun og áform eru uppi um að bæta við nýjum eiginleikum, skýrslum og viðskiptagreind fyrir útgerðirnar,“ segir Vilhjálmur.
Markmiðið hafi verið að skila forriti sem sé þægilegt í notkun og er notendaviðmótið sagt „einfalt og veitir sjómönnum góðan stuðning fyrir utanumhald veiðiferða og afladagbókarskila til Fiskistofu.“
Þá geta notendur skoðað veðurspá og veðurviðvaranir áður en lagt er úr höfn og með einum smelli er veiðiferðin hafin. Í Afladagbókina skrá sjómenn aflabrögð eftir fisktegundum og veiðarfærum á meðan Afladagbókin sér um staðsetningu og tíma og birtir á korti. Að veiðiferð lokinni getur notandinn sent veiðiskýrslu til Fiskistofu með einum smelli, segir í tilkynningunni.
Afladagbókina er fyrir iPhone og Android og er hægt að nota hana á snjalltækjum hvers konar t.d. snjallsímum og spjaldtölvum.