Markmiðið að vera með varðskip báðum megin

Undirritunin fór fram í dag.
Undirritunin fór fram í dag. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Viljayfirlýsing vegna framtíðaraðstöðu fyrir skipaútgerð Landhelgisgæslunnar í Reykjaneshöfn hefur verið undirrituð. Reykjaneshöfn er talin vel staðsett vegna stuttrar fjarlægðar frá aðstöðu LHG á Keflavíkurflugvelli og höfuðborgarsvæðinu.

Viljayfirlýsingin var undirrituð af Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra, Kjartani Má Kjartanssyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Auðuni F. Kristinssyni, framkvæmdastjóra aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og Halldóri K. Hermannssyni, hafnarstjóra Reykjaneshafnar.

„Áformin lúta að gerð langtímaleigusamnings um viðlegukant, auk nauðsynlegrar aðstöðu fyrir þau tæki og búnað sem tilheyra rekstrinum, auk veituþjónustu. Markmiðið er að heimahöfn viðkomandi skipa yrði Reykjaneshöfn og að starfsemi tengd rekstri þeirra færist að verulegu leyti þangað,“ segir á vef Stjórnarráðsins um málið.

Þessi áætlun haggar ekki útgerð varðskipsins Freyju frá Norðurlandi. 

Vinna að uppbyggingu haldi áfram 

Þeir sem komi að viljayfirlýsingunni lýsi því yfir með henni að þeir séu reiðubúnir til þess að vinna áfram að því að fyrrnefnd uppbygging verði að veruleika í samræmi við ofangreindar áherslur.

Í samtali við mbl.is í dag sagði dómsmálaráðherra undirbúningsvinnu til þess að tryggja varðskipinu Þór heimilisfesti á Suðurnesjum hafa staðið yfir síðan á síðasta ári.

„Það verður nær opnu hafsvæði og eft­ir að varðskipið Freyja var sett á Siglu­fjörð var mark­miðið að vera með varðskip­in sitt hvor­um meg­in á land­inu. Þetta er tal­in mjög heppi­leg og góð staðsetn­ing í því sam­bandi,“ sagði ráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »