Tapa peningum hvern mánuð án kjarasamnings

Trausti Jörundarson vill kjósa aftur um kjarasamning með haustinu.
Trausti Jörundarson vill kjósa aftur um kjarasamning með haustinu. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar er ekki ánægður með niðurstöður atkvæðagreiðslu um kjarasamning sjómanna í mars síðastliðnum og bindur vonir við að hægt verði að greiða atkvæði um nýjan kjarasamning fyrir lok september, að því er fram kom í viðtali sem birt var í 200 mílum.

Kjarasamningurinn sem borinn var undir sjómenn var felldur með hátt í 67% atkvæða, en samningar hafa verið lausir frá því í árslok 2019.

Trausti Jörundarson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, segir í viðtalinu vonbrigði að samningurinn skyldi ekki hljóta samþykki félagsmanna en bætir við að kjörsókn hafi ekki verið nema 47%.

Skipverjar á Kaldbak EA1 splæsa upp á togvír. Í nýjum …
Skipverjar á Kaldbak EA1 splæsa upp á togvír. Í nýjum kjarasamningi voru réttindi vegna veikinda og slysa aukin. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Grunnur að samningi

„Það liggur fyrir ágætis grunnur sem semja má nánar um og spurning hvort að hægt sé að breyta einhverjum atriðum sem munu stuðla að því að samningurinn fari auðveldar í gegnum atkvæðagreiðslu hjá sjómönnum. Ábyrgðin liggur hjá okkur öllum sem komum að samningagerðinni og væri óðs manns æði að láta kjarasamningsmálin standa óhreyfð í lengri tíma. Lít ég svo á að fyrir hvern mánuð sem líður án þess að nýr samningur taki gildi, séu mínir félagsmenn að tapa peningum og fara á mis við mikilvæg réttindi,“ segir Trausti.

„Núna erum við að sigla inn í sumarið og litlar líkur á að mikil hreyfing verði á málinu á meðan veiðar standa hæst, en kannski að okkur auðnist að keyra þetta í gegn í ágúst eða í byrjun september. Ættum við helst að ná að finna lausn fyrir áramótin, og helst ná að halda atkvæðagreiðslu fyrir lok september.“

Viðtalið við Trausta má lesa í heild sini í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »