Netin sem notuð eru í kvíarnar í sjókvíaeldi eru mörg gegndræpt með koparblendi. Kostur þess að nýta slíkt efni er að koparblendi hefur örverudrepandi áhrif, en vísindamenn segja hættu á að efnið mengi út frá sér og gera þeir nú ráð fyrir neikvæðum áhrifum þess á lífríkið nálægt sjókvíaeldi umrætt efni er notað, að því er fram kom í umfjöllun 200 mílna.
Norska hafrannsóknastofnunin (Havforskningsinstituttet) tilkynnti fyrr á árinu að hún hafi unnið að því að taka saman fyrirliggjandi þekkingu á losun kopars og hafið rannsóknir á áhrifum þess á krækling. Verkefnið er framkvæmt að beiðni norsku fiskistofunnar (Fiskeridirektoratet).
Í færslu á vef stofnunarinnar fullyrðir Bjørn Einar Grøsvik, vísindamaður á sviði mengunar, að „losun kopars frá netunum er af þeirri stærðargráðu að við gerum ráð fyrir að hún hafi áhrif á sjávarlífverur.“
Bent er á að þegar meta á áhættu sem tengist áhrifum frá mismunandi mengunarvöldum er mikilvægt að kortleggja hvort áhrifin séu til skamms eða lengri tíma, hvort þau séu afturkræf eða óafturkræf og hvort efnin sem um ræðir eru niðurbrjótanleg eða safnast fyrir í umhverfinu (séu þrávirk). Áhrif kopars frá sjókvíaeldi eru að mestu staðbundin, en þar sem eldissvæðin eru nýtt í áraraðir eru áhrifin langvarandi.
Fjallað var um málið í síðasta blaði 200 mílna.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.1.25 | 557,99 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.1.25 | 660,61 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.1.25 | 353,07 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.1.25 | 324,21 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.1.25 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.1.25 | 258,31 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 27.1.25 | 218,50 kr/kg |
27.1.25 Sævar SF 272 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 177 kg |
Samtals | 177 kg |
27.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 484 kg |
Rauðmagi | 13 kg |
Samtals | 497 kg |
27.1.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.116 kg |
Ufsi | 83 kg |
Ýsa | 26 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 1.229 kg |
27.1.25 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 11.675 kg |
Steinbítur | 4.293 kg |
Skarkoli | 1.398 kg |
Samtals | 17.366 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.1.25 | 557,99 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.1.25 | 660,61 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.1.25 | 353,07 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.1.25 | 324,21 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.1.25 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.1.25 | 258,31 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.7.23 | 10,00 kr/kg |
Undirmálsufsi, slægður | 21.1.25 | 249,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 6.1.25 | 90,00 kr/kg |
Gullkarfi | 27.1.25 | 218,50 kr/kg |
27.1.25 Sævar SF 272 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 177 kg |
Samtals | 177 kg |
27.1.25 Dagrún HU 121 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 484 kg |
Rauðmagi | 13 kg |
Samtals | 497 kg |
27.1.25 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Þorskfisknet | |
---|---|
Þorskur | 1.116 kg |
Ufsi | 83 kg |
Ýsa | 26 kg |
Karfi | 4 kg |
Samtals | 1.229 kg |
27.1.25 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 11.675 kg |
Steinbítur | 4.293 kg |
Skarkoli | 1.398 kg |
Samtals | 17.366 kg |