„Þetta er virkilega fallegur fiskur“

Gert er ráð fyrir að Beitir NK komi til hafnar …
Gert er ráð fyrir að Beitir NK komi til hafnar í Neskaupstað í kvöld með 1.440 tonn af makríl. Ljósmynd/Síldarvinnslan: Smári Geirsson

Samfelld makrílvinnsla hefur verið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunanr í Neskaupstað undanfarið. „Þetta er virkilega fallegur fiskur en oftast er töluverð áta í honum og það hefur áhrif á hvernig hann er unninn,“ segir Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, í færslu á vef útgerðarinnar.

„Nú erum við að flaka og hausa en það er ekki heilfryst vegna átunnar. Hafa verður í huga að við erum ávallt að fá nýveiddan fisk og bátarnir kæla aflann um borð þannig að hráefnið er virkilega gott. Það er ekki hægt að segja annað en að vertíðin hafi gengið vel hingað til og við getum ekki kvartað undan neinu,“ segir Geir Sigurpáll.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Síðastliðinn föstudag var lokið við að landa 1.100 tonnum af makríl úr Vilhelmi Þorsteinssyni EA, uppsjávarskipi Samherja, og var þá um leið Barði NK kominn að landi með 830 tonn. Aðfararnótt sunnudags hófst vinnsla á 1.400 tonna afla úr Berki NK og er gert ráð fyrir að Beitir NK komi til hafnar í kvöld með 1.440 tonn.

Í dag hefur verið unnið að því að koma 640 tonnum af frystum hausuðum makríl í frystigeymslur Síldarvinnslunnar úr Hákoni EA.

„Veiði hefur verið nokkuð misjöfn síðustu dagana en skipin hafa best verið að fá um 250 tonn í holi. Eins og áður á vertíðinni hefur veiðin farið fram innan íslenskrar lögsögu og það er svo sannarlega jákvætt,“ segir í færslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.24 426,43 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.24 400,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.24 334,47 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.24 185,24 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.24 164,75 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.24 190,21 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.24 191,71 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.24 Gíslabali ST 32 Handfæri
Þorskur 773 kg
Samtals 773 kg
21.5.24 Beta SU 161 Handfæri
Þorskur 403 kg
Ufsi 76 kg
Samtals 479 kg
21.5.24 Loki ÞH 52 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
21.5.24 Blær HU 77 Handfæri
Þorskur 819 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 824 kg
21.5.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.348 kg
Þorskur 137 kg
Skarkoli 19 kg
Samtals 1.504 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.24 426,43 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.24 400,98 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.24 334,47 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.24 185,24 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.24 164,75 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.24 190,21 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.24 191,71 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

21.5.24 Gíslabali ST 32 Handfæri
Þorskur 773 kg
Samtals 773 kg
21.5.24 Beta SU 161 Handfæri
Þorskur 403 kg
Ufsi 76 kg
Samtals 479 kg
21.5.24 Loki ÞH 52 Handfæri
Þorskur 776 kg
Samtals 776 kg
21.5.24 Blær HU 77 Handfæri
Þorskur 819 kg
Ýsa 5 kg
Samtals 824 kg
21.5.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.348 kg
Þorskur 137 kg
Skarkoli 19 kg
Samtals 1.504 kg

Skoða allar landanir »