„Þetta er búið að blasa við“

Vilhelm Þorsteinsson er forstjóri Eimskips.
Vilhelm Þorsteinsson er forstjóri Eimskips. mbl.is/Sigurður Bogi

„Við vildum freista þess að opna augu stjórnvalda betur til að gæta frekar hagsmuna Íslands við þessa innleiðingu.“

Þetta segir Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, í samtali við mbl.is en nýjar reglur um mengunarkvóta fyrir skipafélög, sem Evrópusambandið hefur samþykkt, taka gildi um næstu áramót. Hagsmunasamtök í atvinnulífinu sendu utanríkisráðherra bréf í lok júní, sem ekki hefur enn verið svarað. Rúv greindi fyrst frá.

Ekki ný frétt

Vilhelm segir ekki um nýja frétt að ræða og að stjórnvöld séu að vinna að innleiðingu tilskipunarinnar. Segir hann að hún kveði á um innleiðingu í fösum, 40% á næsta ári, 70% árið 2025 og að fullu frá árinu 2026.

„Það er viðurkennt að tilskipunin geti lagst þyngra á sum lönd en önnur og þar eru einmitt talin upp eyríki, fámenn ríki og lönd sem eru mjög háð skipaflutningum og eiga ekki kost á lestarflutningum eða fljótabátum. Þetta á allt við um Ísland og þetta er búið að blasa við í dálítinn tíma.“

Segir hann að flugið hafi fengið mikla umfjöllun og athygli frá stjórnvöldum en því miður hafi þau ekki gripið þessa hagsmuni Íslands.

Hefur í för með sér kostnað fyrir þjóðarbúið

Í frétt Rúv er vísað til þess að mat viðmælanda fréttastofunnar í skipaflutningageiranum sé að kaup á losunarkvóta gæti haft í för með sér um fimm til sex milljarða króna kostnað fyrir skipafélögin þegar reglurnar hafa að fullu tekið gildi árið 2026.

Alveg eins og var bent á í tengslum við flugið er að leggjast kostnaður á þjóðarbúið að koma vörum frá Íslandi á markað erlendis og flytja vörur til Íslands að sögn Vilhelms.

„Tæplega 90% af öllum inn- og útflutningi koma í gegnum skip. Það er opnað á að ákveðin lönd með ákveðin einkenni geti fengið undanþágur og við skiljum ekki af hverju er ekki verið að vinna í því og gæta hagsmuna Íslands.“

„Það þarf að vera til orka og hún þarf að vera græn“

Segir hann þá ríkan vilja allra til að auka við strandflutninga sem eru umhverfisvænni á kostnað álags á þjóðvegina og að innleiðing þessara reglna muni auka olíukostnað við strandflutninga.

„Markmiðið með þessu er göfugt og jákvætt og til lengri tíma mun þetta stuðla að hvatningu til orkuskipta en það er miklu lengra verkefni og það er risastórt. Það þarf að vera til orka og hún þarf að vera græn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.9.24 472,91 kr/kg
Þorskur, slægður 26.9.24 496,66 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.9.24 284,47 kr/kg
Ýsa, slægð 26.9.24 288,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.9.24 243,50 kr/kg
Ufsi, slægður 26.9.24 286,20 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 26.9.24 236,50 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 26.9.24 252,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.9.24 Beta GK 36 Línutrekt
Þorskur 5.630 kg
Ýsa 2.130 kg
Steinbítur 227 kg
Keila 4 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 7.994 kg
26.9.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.834 kg
Samtals 1.834 kg
26.9.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 6.037 kg
Þorskur 1.021 kg
Skarkoli 28 kg
Langlúra 24 kg
Ufsi 9 kg
Steinbítur 7 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 7.128 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.9.24 472,91 kr/kg
Þorskur, slægður 26.9.24 496,66 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.9.24 284,47 kr/kg
Ýsa, slægð 26.9.24 288,17 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.9.24 243,50 kr/kg
Ufsi, slægður 26.9.24 286,20 kr/kg
Djúpkarfi 20.9.24 301,00 kr/kg
Gullkarfi 26.9.24 236,50 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 26.9.24 252,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.9.24 Beta GK 36 Línutrekt
Þorskur 5.630 kg
Ýsa 2.130 kg
Steinbítur 227 kg
Keila 4 kg
Skarkoli 2 kg
Karfi 1 kg
Samtals 7.994 kg
26.9.24 Valur ST 30 Handfæri
Þorskur 1.834 kg
Samtals 1.834 kg
26.9.24 Hafrún HU 12 Dragnót
Ýsa 6.037 kg
Þorskur 1.021 kg
Skarkoli 28 kg
Langlúra 24 kg
Ufsi 9 kg
Steinbítur 7 kg
Sandkoli 2 kg
Samtals 7.128 kg

Skoða allar landanir »