Sekta Samskip um 4,2 milljarða

Samanlagðar stjórnvaldsektir vegna framangreindra brota nema 4,2 milljörðum króna.
Samanlagðar stjórnvaldsektir vegna framangreindra brota nema 4,2 milljörðum króna. Ljósmynd/Samskip

Samskip braut með alvarlegum hætti gegn banni 10. gr. samkeppnislaga og 1. mgr. 53. gr. EES-samningsins, með ólögmætu samráði við Eimskip.

Er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Samskip hafi við rannsókn málsins brotið gegn 19. gr. samkeppnislaga með rangri, villandi og ófullnægjandi upplýsingagjöf og gagnaafhendingu.

Samanlagðar stjórnvaldsektir vegna framangreindra brota nema 4,2 milljörðum króna.

Í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu segir að jafnframt sé lagt fyrir Samskip að grípa til tiltekinna aðgerða í því skyni að koma í veg fyrir frekari brot og efla samkeppni.

Rannsókn á brotum Eimskips lauk með sátt félagsins við Samkeppniseftirlitið sumarið 2021. Með sáttinni viðurkenndi félagið brot, greiddi stjórnvaldssekt að fjárhæð 1,5 milljarðar króna og skuldbatt sig til tiltekinna aðgerða.

„Samráðið í heild sinni var til þess fallið að gera fyrirtækjunum kleift að draga með afdrifaríkum hætti úr samkeppni og hækka eða halda uppi verði gagnvart viðskiptavinum fyrirtækjanna, t.d. með hækkun við endurnýjun samninga, hækkun á gjaldskrám og þjónustugjöldum, upptöku nýrra gjalda, lækkun afslátta o.s.frv.

Sameiginleg yfirburðastaða Eimskips og Samskipa á markaðnum, samskipti stjórnenda fyrirtækjanna og aðrir þættir í samráði fyrirtækjanna sköpuðu kjöraðstæður fyrir fyrirtækin til að ná árangri í samráðinu og hagnast á kostnað viðskiptavina og samfélagsins alls,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins.

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.9.24 525,50 kr/kg
Þorskur, slægður 11.9.24 351,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.9.24 306,54 kr/kg
Ýsa, slægð 11.9.24 251,74 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.9.24 199,11 kr/kg
Ufsi, slægður 11.9.24 281,27 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 11.9.24 395,04 kr/kg
Litli karfi 10.9.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 10.9.24 21,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.9.24 Hafbjörg ST 77 Þorskfisknet
Þorskur 434 kg
Ýsa 70 kg
Samtals 504 kg
11.9.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Ýsa 2.036 kg
Þorskur 684 kg
Skarkoli 228 kg
Steinbítur 152 kg
Langa 38 kg
Samtals 3.138 kg
11.9.24 Gullver NS 12 Botnvarpa
Þorskur 19.680 kg
Karfi 2.102 kg
Arnarfjarðarskel 901 kg
Steinbítur 186 kg
Samtals 22.869 kg
11.9.24 Breki VE 61 Botnvarpa
Langa 1.562 kg
Steinbítur 401 kg
Samtals 1.963 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.9.24 525,50 kr/kg
Þorskur, slægður 11.9.24 351,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.9.24 306,54 kr/kg
Ýsa, slægð 11.9.24 251,74 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.9.24 199,11 kr/kg
Ufsi, slægður 11.9.24 281,27 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 11.9.24 395,04 kr/kg
Litli karfi 10.9.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 10.9.24 21,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.9.24 Hafbjörg ST 77 Þorskfisknet
Þorskur 434 kg
Ýsa 70 kg
Samtals 504 kg
11.9.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Ýsa 2.036 kg
Þorskur 684 kg
Skarkoli 228 kg
Steinbítur 152 kg
Langa 38 kg
Samtals 3.138 kg
11.9.24 Gullver NS 12 Botnvarpa
Þorskur 19.680 kg
Karfi 2.102 kg
Arnarfjarðarskel 901 kg
Steinbítur 186 kg
Samtals 22.869 kg
11.9.24 Breki VE 61 Botnvarpa
Langa 1.562 kg
Steinbítur 401 kg
Samtals 1.963 kg

Skoða allar landanir »