Opnaði söluútibú í húsakynnum Gæslunnar

Reynir Brynjarsson viðhaldsskipulagsstjóri (t.v.) og Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar við …
Reynir Brynjarsson viðhaldsskipulagsstjóri (t.v.) og Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar við söluútibú hins fyrrnefnda. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Reynir Brynjarsson, viðhaldsskipulagsstjóri hjá Landhelgisgæslunni, tók sig til á dögunum og opnaði lítið söluútibú Bleiku slaufunnar hjá Landhelgisgæslunni,“ segir í færlsu á Facebook-síðu Landhelgisgæslu Íslands.

Fram kemur að starfsfólk Landhelgisgæslunnar hafi ekki látið sitt eftir liggja og tók sérlega vel í framtak Reynis sem hefur þurft að venja komur sínar að undanförnu í húsnæði Krabbameinsfélagsins til að fylla á birgðirnar því salan fór fram úr björtustu vonum.

Stofnunin hefur eins og mörg fyrirtæki og stofnanir haldið bleika daginn hátíðlegan í dag og mætti starfsfólk í bleiku og gæddi sér á bleikum eftirréttum í tilefni dagsins.

Reynir lét ekki duga að selja slaufuna hjá eigin stofnun heldur leit hann einnig við hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Neyðarlínunni, Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, en þessir aðilar eru allir til húsa á sama stað og Landhelgisgæslan í Skógarhlíð.

„Hjarta Bleiku slaufunnar í ár er slagorðið Verum bleik – fyrir okkur öll, en það vísar til máttarins sem er fólginn í sýnilegri samstöðu. Framtak Reynis rímar sannarlega við slagorð verkefnisins. Við hjá Landhelgisgæslunni erum stolt af okkar manni fyrir þessa vasklegu framgöngu og vonum að sem flestir styðji þetta brýna verkefni Krabbameinsfélagsins,“ segir í færslunni.

Öllum boðið bleik bakkelsi í dag.
Öllum boðið bleik bakkelsi í dag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Starfsfólk Gæslunnar naut sín í dag.
Starfsfólk Gæslunnar naut sín í dag. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 17.5.24 415,38 kr/kg
Þorskur, slægður 17.5.24 510,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 17.5.24 395,54 kr/kg
Ýsa, slægð 17.5.24 265,68 kr/kg
Ufsi, óslægður 17.5.24 127,02 kr/kg
Ufsi, slægður 17.5.24 194,59 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 17.5.24 177,58 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.5.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Þorskur 4.962 kg
Ýsa 1.338 kg
Steinbítur 561 kg
Keila 136 kg
Karfi 4 kg
Hlýri 4 kg
Samtals 7.005 kg
18.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 5.212 kg
Þorskur 633 kg
Ýsa 575 kg
Samtals 6.420 kg
18.5.24 Svanur BA 413 Sjóstöng
Þorskur 117 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 132 kg
18.5.24 Álka ÍS 409 Sjóstöng
Þorskur 192 kg
Samtals 192 kg

Skoða allar landanir »