„Það er ekki hægt að vera annað en sáttur. Staðreyndin er sú að kolmunnaveiðin hefur verið ævintýri líkust að undanförnu og reyndar allt þetta ár. Ég hef aldrei áður upplifað slíka veiði,“ segir Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki NK um gang kolmunnaveiða í færslu á vef Síldarvinnslunnar.
„Það virðist einfaldlega vera miklu meira af fiski en áður og það lætur nærri að að veiðin hafi verið 100 tonn á tímann. Í þessum túr fengum við þessi 3.200 tonn í sex holum,“ segir hann. Löndun aflans úr skipinu í Neskaupstað lauk í morgun.
„Oft hefur veiðin á þessum slóðum byrjað af nokkrum krafti en síðan hefur hún fjarað út. Núna helst aftur á móti þessi góða veiði og ekkert lát á henni. Við höfum að undanförnu alltaf verið að veiða á sama svæðinu og það kemur sífellt meira af fiski inn á það. Veiðarnar hafa farið fram á hinu svonefnda Gráa svæði og norður að svonefndri skiljulínu. Það sem einkennir veiðarnar er mikill afli á skömmum tíma og frábært hráefni fyrir verksmiðjurnar. Auðvitað gengur hratt á kvótann þegar svona fiskast,” segir Hjörvar.
Stór vertíð
Kolmunnaveiðin gengur vel hjá öllum skipum samstæðu Síldarvinnslunnar og var lokið við að landa fullfermi úr Hákoni EA á Seyðisfirði í gær. Beitir NK er síðan kominn að landi með rúm 3.000 tonn og mun landa á Seyðisfirði á morgun.
Kolmunninn hefur víða komið sér vel í loðnuleysinu og nýst vel í mjöl- og lýsisgerð. Í færslunni segir að vinnsla í fiskimjölsverksmiðjum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og á Seyðisfirði gangi afar vel.
Íslensku uppsjávarskipin hafa heimidlir til veiða á tæplega 306 þúsund tonnum af kolmunna í ár og hefur Síldarvinnslan mestu heimildirnar í tegundinni, heil 91.536 tonn. HAfa íslensku skipin veitt um 210 þúsund tonn og er því enn um þriðjungur aflaheimilda eftir.