Spretthópur skoðar mál Grímseyjar

Frá höfninni í Grímsey.
Frá höfninni í Grímsey. mbl.is/Sigurður Bogi

Bjarkey Olsen matvælaráðherra íhugar nú að stofna spretthóp til að bregðast við viðkvæmri stöðu byggðar í Grímsey. Hún segir það sannarlega vera vilja sinn að halda byggð um allt land, ekki síst í eyjunni þar sem byggð hefur verið frá landnámi.

Fjórar fjölskyldur hafa auglýst hús sín til sölu og enn fleiri íhuga að yfirgefa eyjuna eftir að í ljós kom að útgerðunum í byggðarlaginu verður ekki veitt undanþága frá vinnsluskyldu í tengslum við byggðakvóta.

Telja útgerðarmennirnir það ekki standa undir kostnaði að koma á fót fiskverkun í eyjunni sem myndi uppfylla öll skilyrði.

Að sögn Bjarkeyjar mat Byggðastofnun það svo að ekki væri lengur unnt að veita undanþáguna. „Það væri betra að allir aðilar sætu við sama borð og töldu þau ekki hægt að mismuna landsmönnum með þeim hætti sem verið hefur og Grímseyingar þyrftu að lúta sömu lögmálum og aðrir þegar kemur að úthlutun byggðakvóta.“

Byggðastofnun segir það hvorki falla undir verksvið né valdsvið stofnunarinnar að gefa út reglugerð til að veita undanþágur. Það sé hlutverk matvælaráðuneytisins.

Í byrjun árs voru íbúar í Grímsey 57 talsins, samkvæmt Hagstofunni. Mun færri eru þar með fasta búsetu yfir árið, eða í kringum 20 manns, flestir sjómenn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.10.24 417,67 kr/kg
Þorskur, slægður 11.10.24 455,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.10.24 229,45 kr/kg
Ýsa, slægð 11.10.24 203,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.10.24 241,47 kr/kg
Ufsi, slægður 11.10.24 257,52 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 11.10.24 201,63 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 10.10.24 195,15 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.10.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 2.588 kg
Þorskur 163 kg
Karfi 23 kg
Samtals 2.774 kg
11.10.24 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 1.272 kg
Keila 1.019 kg
Ufsi 282 kg
Steinbítur 75 kg
Þorskur 41 kg
Ýsa 23 kg
Karfi 11 kg
Samtals 2.723 kg
11.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.810 kg
Ýsa 2.787 kg
Langa 771 kg
Keila 254 kg
Ufsi 178 kg
Steinbítur 123 kg
Hlýri 108 kg
Karfi 80 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 12.134 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 11.10.24 417,67 kr/kg
Þorskur, slægður 11.10.24 455,85 kr/kg
Ýsa, óslægð 11.10.24 229,45 kr/kg
Ýsa, slægð 11.10.24 203,19 kr/kg
Ufsi, óslægður 11.10.24 241,47 kr/kg
Ufsi, slægður 11.10.24 257,52 kr/kg
Djúpkarfi 3.10.24 196,31 kr/kg
Gullkarfi 11.10.24 201,63 kr/kg
Litli karfi 25.9.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 10.10.24 195,15 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.10.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 2.588 kg
Þorskur 163 kg
Karfi 23 kg
Samtals 2.774 kg
11.10.24 Auður Vésteins SU 88 Lína
Langa 1.272 kg
Keila 1.019 kg
Ufsi 282 kg
Steinbítur 75 kg
Þorskur 41 kg
Ýsa 23 kg
Karfi 11 kg
Samtals 2.723 kg
11.10.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 7.810 kg
Ýsa 2.787 kg
Langa 771 kg
Keila 254 kg
Ufsi 178 kg
Steinbítur 123 kg
Hlýri 108 kg
Karfi 80 kg
Skarkoli 23 kg
Samtals 12.134 kg

Skoða allar landanir »