514 nýir bílar voru seldir í september en það er 65% aukning miðað við sama mánuð fyrir ári. Heildarsala nýrra bíla fyrstu 9 mánuði ársins er nú 6.757 bílar en til samanburðar voru 5.431 bíll seldur allt árið í fyrra.
Þetta kemur fram á blogg-síðu Egils Jóhannssonar, forstjóra Brimborgar.
Þrátt fyrir þessa aukningu er bílasala enn lítil í sögulegu samhengi og til samanburðar er árleg meðalsala undanfarin 40 ár tæpir 10 þúsund bílar. Líklegt er að heildarsalan á árinu verði um 7.600 bílar.