Vart er til meira spennandi vettvangur fyrir bíla en í myndunum um James Bond, því hlutverk þeirra þar er vanalega stórt. Þeir eru settir í það dásamlega hlutverk að vera verkfæri færasta spæjara kvikmyndasögunnar sem notar þá til að koma sér úr ótrúlegustu vandræðum.
Ekki eru til mikið stærri tækifæri bílaframleiðenda til að sveipa bíla sína dýrðarljóma og eilífðarfrægð, sem þeir sannarlega hafa gert. Bílar breskra framleiðenda hafa eðlilega verið mjög áberandi í myndunum, en þýskir bílar hafa einnig haft nokkurt hlutverk og þá helst frá BMW sem fluttu njósnarann milli staða í þremur af fjórum Bondmyndum leikarans Pierce Brosnan.
Blaðamaður Daily News í Bretlandi setti niður á blað lista þeirra 10 bíla úr James Bond myndunum sem hann vildi helst eiga og er listi hans birtur hér.
Sá sem endaði í 10. sætinu var ekki beinlínis bíll heldur feneyskur gondóll sem breyttist í hraðbát og síðan í loftpúðafarartæki sem ferðast gat á landi. Báturinn sást í myndinni Moonraker frá 1979. Í 9. sæti er goðsagnakenndur bíll, Lotus Esprit Turbo úr myndinni For Your Eyes Only frá 1981. Á honum voru skíðafestingar og var hann mest notaður í atriðum í austurrísku ölpunum. Áttunda sætið fyllir Aston Martin DBS sem bæði sást í myndunum Casino Royale frá 2006 og Quantum of Solace. Í báðum myndunum er ansi illa farið með bílinn og hann mikið skemmdur af Daniel Craig sem fór þá með hlutverk Bond.
Í því sjöunda er BMW Z3 blæjubíll sem ekið var af Pierce Brosnan í Goldeneye árið 1995. Þessi smái BMW var ekki mjög áberandi í myndinni, hann sást aðeins tvisvar sinnum. Sjötta sætið vermir annar BMW af Z8 gerð og hann er einnig blæjubíll og frekar smávaxinn. Honum var ekið af Pierce Brosnan í myndinni The World Is Not Enough árið 1999. Loks kemur aftur Aston Martin bíll í 5. sætinu og það af V8 Vantage-gerð, en hann var fyrsti bíllinn sem Timothy Dalton ók í hlutverki James Bond. Þetta var í myndinni The Living Daylights frá 1987. Bíllinn sást bæði sem blæjubíll og með harðan topp. Staðreyndin var reyndar sú að um tvo ólíka bíla var að ræða. Þriðji BMW bíllinn vermir svo 4. sætið og það einn af stærri gerðinni, BMW 750iL sem Pierce Brosnan stjórnaði svo eftirminnilega með símanum sínum í bílastæðahúsi í myndinni Tomorrow Never Dies frá 1997.
Einn Aston Martin bíllinn enn er í 3. sætinu, sem telst kannski ekki svo skrítið því þeir hafa verið einkar áberandi í myndum James Bond og vel við hæfi að njósnarinn breski aki ekta breskum öflugum lúxusbílum. Þessi bíll er af DB5-gerð og birtist hann í einum 5 myndum, þ.e. Goldfinger, Thunderball, Goldeneye, Tomorrow Never Dies og Casino Royale. Þessi bíll verður að teljast sögulegasti bíll James Bond-myndanna og hefur hann sést svo oft að enginn slær honum við. Margir myndu eflaust segja að þetta væri hinn eini og sanni James Bond-bíll. Honum var fyrst ekið af Sean Connery árið 1964 í Goldfinger og hafði þar stórt hlutverk, en minna í öllum hinna fjögurra. Til að kóróna aðkomu Aston Martin-bíla að myndunum er Aston Martin Vanquish í öðru sæti listans en honum var ekið af Pierce Brosnan í Die Another Day árið 2002. Sá bíll sem blaðamaðurinn breski hjá Daily News dreymir helst um er Lotus Esprit úr myndinni The Spy Who Loved Me. Hann var ekki bara gullfallegur á landi heldur þjónaði hann einnig Bond sem kafbátur. Fáir bílar leika það eftir.