Allt útlit er fyrir að Datsun-bíllinn sem Nissan er að endurvekja verði seldur á aðeins um 3.000 dollara þegar hann kemur á götuna í Indlandi, Indónesíu og Rússlandi árið 2014.
Þetta staðfestir forstjóri Renault- Nissan, Carlos Ghosn, við bandaríska blaðið Wall Street Journal. Blaðið kveðst hafa heimildir fyrir því að Datsun-bíllinn billegi verði seldur á bilinu 3-5 þúsund dollara eftir búnaði.
Bíllinn verður fábúinn að tæknibúnaði og nútíma akstursþægindum og ekki seldur í þróaðri löndum eins og Evrópu og Bandaríkjunum vegna strangra öryggisákvæða.
agas@mbl.is