Lítið hefur sést af Fiat-bílum hérlendis í nokkurn tíma en nú er að verða breyting þar á því bílasölurnar diesel.is og Bílalíf eru komnar með smábílinn Fiat 500 til sölu. Þessi bíll hefur verið í sölu í Evrópu frá árinu 2007. Hönnun hans var innblásin af 50 ára sögu þessa bíls og var afturhvarf til fortíðar og glæstrar sögu hins smávaxna bíls sem seldist vel frá upphafi. Hann er einn fyrsti bíllinn sem framleiddur var í heiminum sem borgarbíll.
Bíllinn sem boðinn verður til sölu nú er Fiat 500 Lounge útgáfa. Hann kostar 2.670.000 kr. er með glerþaki, Start/Stop búnaði og ýmsum öðrum þægindum sem ekki er endilega að finna í mörgum smábílnum.