Nýr Volkswagen Golf er kominn til landsins en það er sjöunda kynslóð þessa vinsæla bíls sem tæplega 30 milljón eintök hafa selst af frá því hann kom fyrst á markað 1974. Nýr Volkswagen Golf verður frumsýndur í HEKLU á morgun, laugardag, kl. 12-16 og hjá umboðsmönnum um land allt þar sem hægt verður að reynsluaka bílnum.
Hér er á ferðinni liðsmaður sjöundu kynslóðar VW Golf. Að sögn hönnuða VW er hann betri en nokkru sinni fyrr. Bíllinn er aflmeiri og sparneytnari en áður, hraðskreiðari og öruggari og léttari. Gagnstætt því sem almennt gerist í bílaheiminum þá stækka bílar og þyngjast á milli árgerða eða kynslóða, en þessi nýi Golf er 100 kílóum léttari en fyrirrennarinn.
Bíllinn er líka sparneytnari, því hann eyðir allt að 23% minna eldsneyti, allt eftir vélargerð. Þessi sjöunda kynslóð Golf er einnig væntanleg með BlueMotion-tækni, og í þeirri útgáfu verður eyðslan aðeins 3,2 lítrar af eldsneyti á hundraðið og með þessari vél sendir bíllinn aðeins 85 grömm af koltvíildi út í andrúmsloftið á hvern ekinn kílómetra
Fótarými í aftursæti hefur verið aukið og farangursrými er 30 lítrum stærra. Hvað öryggið varðar þá eru hemlakerfi með árekstarvörn, skriðstilli sem aðlagar sig að akstursaðstæðum, heldur jafnri fjarlægð frá næsta bíl og eykur eða minnkar hraðann í samræmi við flæði umferðarinnar, „aðstoð að framan“ með neyðarhemlun í borgarumferð, og „akreinaaðstoð“ meðal öryggisatriða í sjöundu kynslóð Golf.
Golf er nú einnig í boði með „þreytuskynjun“, sem fylgist með aksturslagi ökumanns og gefur fimm sekúndna viðvörunarhljóð ef vart verður við ónákvæm viðbrögð vegna þreytu í akstri, jafnfram birtast skilaboð á skjá sem mæla með hvíld fyrir ökumanninn.
Snertiskjár er staðalbúnaður í öllum gerðum og ný kynslóð upplýsinga- og afþreyingarkerfa, sem eru með skjá sem svara handahreyfingum í betur búnu gerðum hins nýja Golf. Hljómtækin eru með inntaki fyrir aukabúnað (þar með talið USB) og eru tilbúin fyrir Bluetooth tengingu farsíma.