Þetta myndband er reyndar ekki alveg nýtt, en svo magnað að það er ekki hægt að sleppa því að birta það. Þáttastjórnendur sjónvarpsþáttarins Fifth Gear prófuðu að senda Ford Focus á steyptan vegg á 192 km hraða, sem einskonar árekstrarpróf.
Því er skemmst frá að segja að það var sáralítið eftir af bílnum eftir áreksturinn. Hér fyrir neðan er myndband sem sýnir áreksturinn sjálfan, en til að skoða atriðið úr þættinum í heild sinni getur þú smellt hér.