Enn höldum við áfram að birta myndbönd sem við fáum send á bill@mbl.is, af stökkvandi bílum og öðrum farartækjum.
Að þessu sinni er það Suzuki Fox, styttri gerðin, sem tekur gott tilhlaup og stekkur drjúgan spotta á 80 km hraða.
Það fylgir sögunni að stökkið varð banabiti bílsins, en slíkt er alltaf hættan við slíkar æfingar. Eftir því sem við komumst næst sakaði engan annan.
Aríel, sem sendi myndbandið inn, segir það vera „besta súkkustökksmynbrotið sem fyrirfinnst á Youtube“.
Gjörið svo vel.
(Uppfært kl. 09.17, 12. mars: Við birtingu fréttarinnar læddist inn rangt myndband. Hér er komið það rétta.)