Fast & Furious 7 í bígerð

Vin Diesel vinnur væntanlega enn einn leiksigurinn í F&F 7.
Vin Diesel vinnur væntanlega enn einn leiksigurinn í F&F 7. Úr kvikmynd

Nei, þú last ekki vitlaust. Og já, við vitum að Fast & Furious 6 er ekki enn komin í bíó (það gerist eftir rúman mánuð). Engu að síður hefur Top Gear það eftir Vin Diesel sjálfum að til standi að skella í eina í viðbót og frumsýna hana 11. júlí 2014.

„Hún verður stærri en allar hinar,“ sagði vöðvabúntið með kolabarkann á Cinemacon-ráðstefnunni í Las Vegas sem lýkur í dag. Leikstjóri mun verða James Wan, sem gerði meðal annars Saw og Insidious.

Eitt aðalsmerki Fast & Furious-myndanna er mikið úrval hraðskreiðra bíla sem gjarnan er búið að eiga mikið við. Aðdáendur slíkra tækja þurfa því ekki að svelta næstu misserin.

mbl.is

Bloggað um fréttina