Nú stendur yfir hin árlega sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu, en að þessu sinni keppa 24 fólksbílar í 11 flokkum um hver getur farið frá Reykjavík til Akureyrar, á sem minnstu eldsneyti.
Hægt er að fylgjast með því í rauntíma hvar bílarnir eru staddir, á slóðinni fib.is/sparakstur. Þar er líka hægt að sjá á hvaða hraða hver bíll er þá stundina.
Þegar þetta er skrifað eru fyrstu bílar farnir að nálgast Öxnadal, en töluvert er frá fremsta bíl til þess aftasta. Það segir þó ekki alla söguna, því keppnin snýst um eyðslu bílanna, en ekki hver kemur fyrstur í mark.
Búist er við að úrslit verið tilkynnt kl. 17.00 í dag.