Frá Reykjavík til Akureyrar fyrir 3600 krónur

Úrslit í sparaksturskeppni voru kunngerð í dag.
Úrslit í sparaksturskeppni voru kunngerð í dag. Af vef FÍB.

Bíllinn sem minnstu eldsneyti í Sparaksturskeppni milli Reykjavíkur og Akureyrar, keyrði þangað fyrir því sem nemur 3600 krónum. Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu fór fram föstudaginn 31. maí.

Sigurvegari er Júlíus H. Eyjólfsson á Toyota Yaris dísil. Eldsneytiseyðsla bíls Júlíusar reyndist 3,92 lítrar. Nánar tiltekið var eldsneytiskostnaður því 3.621 kr. á verði dagsins í dag.

Úrslitin lágu ekki fyrir fyrr en í dag eftir að dómnefnd felldi úrskurð í málum þriggja keppenda. Keppnisstjórn hafði vísað tveimur þessara mála til dómnefndarinnar en kæra barst vegna þess þriðja. Úrskurður dómnefndarinnar var á þann veg að öllum bílunum þremur var vísað úr keppni.

Í öðru sæti varð Hilmar Þorkelsson á Volkswagen Polo dísil. Rauneyðsla bíls Hilmars var sú minnsta í keppninni eða einungis 3,44 l á hundraðið. En aksturinn var það hægur að Hilmar var talsvert lengur á leiðinni en hann hefði átt að vera samkvæmt tímamörkum keppninnar og hlaut hann því 0,48 l í refsingu og aftur 0,45 l refsingu vegna of skamms hvíldartíma á Gauksmýri. Því varð eyðsla hans 4,36 l að meðtöldum refsistigum (lítrum).

Í frétt á vef FÍB segir að keppnin keppnin hafi verið með breyttu sniði frá fyrri árum. Leiðin var mun lengri en áður, eða frá Reykjavík til Akureyrar. Keppendum var gert að aka á löglegum hámarkshraða eins og hann er á einstökum köflum leiðarinnar.

Þá segir að tímamörk hafi verið mun þrengri en áður og keppnin því vandasamari og harðari. Þá var í hverjum keppnisbílanna SAGA búnaður frá Arctic Track og „sjónvarpaði“ búnaðurinn ferð hvers einstaks bíls. Keppninni nú var á öðrum þræði ætlað að sýna fram á að hægt sé að ferðast um landið án gífurlegra eldsneytisútgjalda, ef viðhaft er úthugsað ökulag í þeim tilgangi að spara eldsneyti án þess að tapa ferðatíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina