Metangasstöð í Hafnarfirði lokað

Metanstöð N1 á Ártúnshöfða.
Metanstöð N1 á Ártúnshöfða. mbl.i/Ómar Óskarsson

N1 hefur ákveðið að loka annarri af tveimur metangasstöðvum félagsins, við Tinhellu í Hafnarfirði. Ástæðan er sú að eftir úrskurð Samkeppniseftirlitsins, vegna samráðs um gasverð, var samið upp á nýtt um Sorpu og fær N1 nú umtalsvert minna af metangasi en áður. 

Útboðið fór fram í kjölfar úrskurðar Samkeppniseftirlitsins frá því í desember síðastliðnum, þegar Sorpa, Metan hf., Orkuveita Reykjavíkur og N1 féllust á að greiða samtals 9 milljónir króna vegna samráðs um verð á metangasi. Félögin hétu því þá jafnframt að örva samkeppni á þessu sviði.

Í fréttatilkynningu frá N1 í dag segir að fyrirtækið fái nú umtalsvert minna af metani til að selja sínum viðskiptavinum en áður vegna þessa. N1 geti þar af leiðandi ekki haldið úti tveimur sölustöðum lengur. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að loka metanstöðinni að Tinhellu í Hafnarfirði þann 20. júní.

Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri N1, segir að fjárfest hafi verið umtalsvert í búnaði til að tryggja umhverfisvæna flutningsleið fyrir metangasið frá Sorpu til N1. 

„Orkuveita Reykjavíkur lagði rör til stöðvarinnar okkar og við höfum dælt gasinu um það rör og greitt OR leigu fyrir.  Þetta verkefni er mikilvægur þáttur í viðleitni okkar til að bjóða umhverfisvænni orkugjafa.  Vegna minna framboðs til okkar frá Sorpu þurfum við þó að loka Tinhellunni sem metanstöð til þess að tryggja eins og hægt er framboð á stöðinni okkar á Bíldshöfða.“

Um 10% sölunnar hjá N1 hafa verið á metanstöðinni við Tinhellu.

Frétt mbl.is: Greiða sekt fyrir samráð um gasverð.

mbl.is