Spólað í Akureyrarsól

Sigurvegarinn, Þórir Örn Eyjólfsson, í brautinni í kvöld.
Sigurvegarinn, Þórir Örn Eyjólfsson, í brautinni í kvöld. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Góð stemning var á keppni í drift, sem svo er kallað, á Bíladögum á Akureyri í kvöld.

Kúnstin er sú að spóla sem best í braut sem lögð er eins og tölustafurinn 8; ekki að reika bílinn í keilur sem marka brautina og ekki að snúa í bílnum í hring.

Sumar óku snilldarlega í kvöld. Töluverður fjöldi fólks fylgdist með, en greinilegt er þó að að færri hafa lagt leið sína til bæjarins vegna Bíladaga en í fyrra.

mbl.is

Bloggað um fréttina