Það hafa lengi verið sögur á kreiki um að nú sé komið að því að Lincoln kynni nýja og meira spennandi bíla. Líkt og Cadillac tókst að poppa upp ímynd sína þá hafa margir viljað að Lincoln gerði slíkt hið sama. Sögusagnirnar virðast þó oftast hafa verið byggðar á óskum fremur en hörðum staðreyndum. Það kemur þó ekki í veg fyrir að nýjar sögur komist á kreik.
Í dag bíður Lincoln ekki upp á neinn lítinn bíl, sá minnsti er á stærð við Ford Mondeo. Nýjustu sögusagnirnar eru í þá átt að á næstu árum ætli Lincoln að búa til lúxus smábíl og smá-jeppling en talið er að eftirspurn eftir þess lags bílum muni aukast gríðarlega á næstu árum vestanhafs. Hvort eitthvað verði svo úr því eða hvort Lincoln haldi áfram að deyja drottni sínum leiðir tíminn einn í ljós.