Sautján ný umferðarmerki hafa bæst í hóp þeirra sem áður voru í gildi. Þar af eru fjögur aðvörunarmerki, eitt boðmerki, þrjú upplýsingamerki, fjögur þjónustumerki, tvö undirmerki auk fimm annars konar merkja.
Þetta kemur fram í Stjórnartíðindum frá því á fimmtudag í síðustu viku, en þar eru birtar myndir af merkjunum og hlutverk þeirra og tilgangur útskýrður.
Hér má sjá Stjórnartíðindin og nánari útskýringar á nýju merkjunum.