Höfuðljósin í ólagi

Samkvæmt upplýsingum Samgöngustofu er ástand ljósa á bílum í talsverðum ólestri. 

Á vef stofnunarinnar segir, að mikið sé um eineygða bíla í umferðinni og margir virðast ekki vera vissir um hvernig þeir eiga að kveikja á þokuljósum. 

„Góð ljós skipta alltaf miklu máli, en ekki síst þegar að sumri hallar og dimma tekur á kvöldin,“ segir á vef Samgöngustofu.

mbl.is