10 mest seldu bílar allra tíma

Toyota Corolla átti eftir að valda byltingu í bílaeign. Hér …
Toyota Corolla átti eftir að valda byltingu í bílaeign. Hér á landi sem annars staðar trónir hann á toppnum sem mest seldi bíllinn.

Þrátt fyrir mjög svo aukna bifreiðaeign síðustu tvo til þrjá áratugina er enn að finna mun eldri bíla á lista yfir 10 söluhæstu fólksbílana frá upphafi vélknúinna farartækja. Bíla sem löngu er hætt að framleiða.

Þykir það öflugur vitnisburður um einstakar vinsældir og ágæti viðkomandi bíla meðan þeir voru fáanlegir.

Þá er að sjálfsögðu að finna á listanum bíla sem eru nú í framleiðslu og seljast jafnvel betur í dag en nokkru sinni áður. Og möguleikar eru á að einhverjir þeirra eigi í framtíðinni eftir að verma eitt af topp 10 sætunum á lista af þessu tagi. Tölurnar sem ná yfir sölu bílanna eru frá síðustu áramótum en samt líklegt að röðin hafi lítið sem ekkert breyst síðan.

Í tíunda sætinu er Chevrolet Impala sem enn er framleiddur. Frá því hann kom fyrst á götuna árið 1958 sem Bel Air Impala hafa 14 milljónir eintaka verið seld, en nýjasta kynslóðin er sú tíunda.

Í níunda sæti er Volkswagen Passat og þrátt fyrir að vera langt um minna aldurshniginn en Passat þá hafa selst fleiri eintök af þessum bíl, eða 15,5 milljónir eintaka frá því hann leit fyrst dagsins ljós, árið 1973. Passat er mun sparneytnari bíll í dag og fer með um 5,5 lítra á hundraðið á þjóðvegum úti.

Í áttunda sæti er fyrsti fjöldaframleiddi bíllinn sem verulega hefur kveðið að. Þegar Henry Ford hóf raðsmíði á Ford Model T árið 1908 hófst bylting í bílaframleiðslu. Model T markaði veginn og opnaði stórum hópum fólks möguleikann á að eignast eigið farartæki. Á framleiðslutíma Model T seldust 16,5 milljónir eintaka sem er einstakur árangur, alveg sama við hvað er miðað. Var hann bíllinn drottnandi, sakir fjöldans, á bandarískum vegum á sínum tíma.

Í sjöunda sæti er einn af nokkrum japönskum bílum, Honda Accord, sem áunnið hefur sér orðstír fyrir áreiðanleika og endingartraust. Upphaflega var um smábíl að ræða – samt kallaður stóri bróðir Civic í árdaga – sem vaxið hefur í stallbak dagsins í dag. Accord hefur selst í 17,5 milljónum eintaka frá því hann kom fyrst á götuna 1976. Ný kynslóð bílsins sá dagsins ljós í ár og rokselst enn þann dag í dag.

Þeir fylgjast að á listanum bræðurnir en Honda Civic er einu sæti ofar Accord, sem sjötti söluhæsti bíll allra tíma. Civic kom fyrst á götuna árið 1973 sem smábíll og hefur látið að sér kveða alla tíð. Í 40 ára sögu hans hafa 18,5 milljónir Civic runnið um götur og vegi heimsbyggðarinnar allrar. Ný kynslóð kom til sögunnar í ár og hefur hlotið lof og fengið góðar viðtökur meðal bílkaupenda.

Henry Ford getur verið stoltur af arfleifð sinni því bílrisinn sem hann stofnaði og við er kenndur á fleiri fulltrúa á listanum en Model T. Þannig er bíll sem reynst hefur mörgum Íslendingnum sá fimmti mest seldi allra tíma, Ford Escort. Hið undarlega er að hann hefur reynst miklu vinsælli í Evrópu en Bandaríkjunum, á smíðistímanum, frá 1968 til 2000. Á þeim tíma runnu tæplega 20 milljónir eintaka út um heimsbyggðina alla.

Volkswagen Bjallan á eitt lengst lífsskeið nokkurs bíls en frumgerð hennar kom á götuna í Þýskalandi í aðdraganda seinna stríðins, árið 1938 og er enn framleidd. Í millitíðinni hefur bjallan selst í 23,5 milljónum eintaka og er í fjórða sæti yfir söluhæstu bíla sögunnar.

Bjallan var endurhönnuð frá grunni og tók talsverðum og nútímalegri útlitsbreytingum í byrjun níunda áratugarins. Var þar um fyrsta svonefnda „retro“ bílinn að ræða, eða alveg nýjan bíl sem þó byggist á ímynd og útliti fornlegri bíls. Ekki þykir nýja bjallan þó búa yfir sjarma þeirrar gömlu og hefur því mælst misjafnlega fyrir.

Þriðji mest seldi bíll sögunnar á eftir að vera á listanum um ókomin ár, í því sæti eða ofar. Þar er á ferðinni Volkswagen Golf, blátt áfram bíll sem tæpast þarf að kynna fyrir neinum. Frá því frumgerðin kom á götuna 1974 hafa 27,5 milljónir Golf selst. Hefur hann fyrir nokkru slegið Bjöllunni við að vinsældum.

Næstmest seldi bíll sögunnar er svonefnd F-gerð Ford-pallbílsins, sá eini sinnar tegundar á listanum. Vinsældir hans hafa verið miklar allar götur frá 1948. Og þær eru ekkert að dvína því það sem af er þessu ári hefur hann verið söluhæsti bíll Bandaríkjanna mánuð eftir mánuð. Í 65 ára sögu bílsins hafa 35 milljónir eintaka verið seld.

Núverandi Ford F-150 er öllu hagkvæmari í rekstri en áður, 2013 árgerðin fer með tæpa 11 lítra á hundraðið á vegum úti, en til samanburðar þurfti 1993 árgerðin 14 lítra á sömu vegalengd.

Árið 1966 kom fyrsta eintakið af Toyota Corolla á götuna. Átti þessi bíll eftir að valda vatnaskilum í almennri bílaeign, ekkert síður en þegar Ford kom með Model T. Á tæplega 50 ára ferli höfðu ríflega 37,5 milljónir Corolla-bíla selst um síðustu áramót. Ekkert lát er á sölu þessa vinsæla fólksbíls. Ný og endurhönnuð kynslóð hóf göngu sína í ár þrátt fyrir að eldri kynslóðin væri ennþá reglulega meðal söluhæstu bíla.

Af upptalningu þessari má álykta, að mörg þessi bílaheiti eigi áfram eftir að verma sæti á lista yfir 10 sölumestu bíla sögunnar. Hversu lengi er ómögulegt um að spá.

agas@mbl.is

Þegar Henry Ford hóf raðsmíði á Ford Model T árið …
Þegar Henry Ford hóf raðsmíði á Ford Model T árið 1908 hófst bylting í bílaframleiðslu. Bíllinn er enn þann dag í dag meðal 10 mest seldu frá upphafi.
Ford F-150 er glæsilegur fulltrúi Ford F-línunnar sem er næstsöluhæsta …
Ford F-150 er glæsilegur fulltrúi Ford F-línunnar sem er næstsöluhæsta bíltegund sögunnar.
Honda Accord nýjustu árgerðar gengur sérlega vel í Bandaríkjunum.
Honda Accord nýjustu árgerðar gengur sérlega vel í Bandaríkjunum.
Eldforn útgáfa af Ford F-pallbílnum sem er í öðru sæti.
Eldforn útgáfa af Ford F-pallbílnum sem er í öðru sæti.
Því verður ekki móti mælt að Chevrolet Impala var stórglæsilegur …
Því verður ekki móti mælt að Chevrolet Impala var stórglæsilegur bíll í árdaga.
Honda Civic hefur náð mikilli útbreiðslu en í upphafi var …
Honda Civic hefur náð mikilli útbreiðslu en í upphafi var um smábíl að ræða.
Chevrolet Impala af 10. kynslóðinni er ólíkur forvera sínum .
Chevrolet Impala af 10. kynslóðinni er ólíkur forvera sínum .
Toyota Corolla af árgerðinni 2014 hefur runnið út í Bandaríkjunum …
Toyota Corolla af árgerðinni 2014 hefur runnið út í Bandaríkjunum í ár. Corolla er söluhæsta bílamódel sögunnar og ekki sér fyrir endann á vinsældunum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina