Þetta myndband er ekki fyrir viðkvæma. Í því sést þegar tveir menn á mótorhjóli taka fram úr öðrum mótorhjólamanni og beina byssu að honum. Sá sér þann kost vænstan að nema staðar og afhenda þeim hjólið.
Um leið og vopnaði þjófurinn sest á hjólið kemur aðvífandi óeinkennisklæddur lögregluþjónn og skýtur þjófinn tveimur skotum.
Myndbandið er tekið á myndavél á hjálmi eiganda hjólsins, en samkvæmt Carbuzz.com herma óstaðfestar fréttir að þjófurinn hafi lifað af og verið færður bakvið lás og slá.
Atburðurinn átti sér stað í Sao Paolo í Brasilíu. Þar hefur glæpatíðni lækkað lækkað jafnt og þétt frá aldamótum og er tíðni morða þar nú innan við helmingur af landsmeðaltali Brasilíu, eftir því sem fram kemur á Wikipedia.