Sala á nýjum bílum á Spáni jókst um 15% í nóvember sl. en alls voru nýskráðir 55.450 fólksbílar þar í landi. Spænska bílgreinasambandið Anfac þakkar það sérstökum aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að fækka gömlum, óöruggum og mengandi bílum í umferð.
Samkvæmt upplýsingum frá Bílagreinasambandinu hér á landi jókst sala á nýjum bílum á Spáni í október um 34% vegna þessara aðgerða. Eftirgjöf er á gjöldum ef 7-10 ára gömlum bíl er fargað og nýr sparneytnari bíll keyptur í staðinn.
Þetta er í þriðja sinn sem þessi leið sé farin á stuttum tíma. Þessara ríkisstyrktu aðgerða vegna hafa 300.000 gamlir og eyðslufrekir bílar horfið af götunum og nýir og sparneytnari bílar leyst þá af hólmi. Aðgerðirnar eru liður í því að auka hagvöxt í landinu og koma til móts við almenning og auðvelda fólki að skipta í nýjan bíl.
Á fyrstu 11 mánuðum ársins hefur bílasala aukist um 2% eða alls hafa verið nýskráðir 662.188 bílar að sögn spænska bílgreinasambandsins. Reikna menn með að fjöldinn verði kominn í 720.000 þegar árið er liðið í aldanna skaut.
Þess má geta að meðalaldur fólksbíla hér á landi er komin yfir 12 ár og eldist enn frekar enda um 5,4% samdráttur í nýskráningum á fyrstu 11 mánuðum ársins samanborðið við sama tímabil ársins 2012.