Stærsti ökuskóli landsins, ökuskólinn í Mjódd, tók nýverið í notkun glænýjan ökuhermi sem gjörbyltir akstursnámi á Íslandi. Nú er hægt að kenna ungum ökumönnum að keyra í myrkri, rigningu, þoku og í snjó á sjóðheitum sumardögum.
„Við erum búnir að vera með þennan hermi í nokkrar vikur og erum svona að fikra okkur áfram með hann. Okkur finnst komin góð reynsla á herminn þó að við séum búnir að hafa hann stutt,“ segir Þórður Bogason hjá Ökuskólanum í Mjódd en hann hefur bætt inn í námskeið sín nýjum ökuhermi og fá nemendur 10 mínútur í græjunni til að gera allskonar æfingar. Séu nemendur slakir í þeirri list að aka af stað, að aka í myrkri eða á öðrum sérstökum sviðum geta þeir æft sig í herminum. Þórður segir þetta frábæra viðbót fyrir nemendur skólans.
„Þetta er viðbót við allt námið. Við erum líka með skellinöðru- og mótorhjólahermi þannig að allir geta fengið að æfa sig. Krakkarnir hafa tekið þessari viðbót fagnandi. Þeir öðlast aukinn skilning á umferðinni. Við höfum verið að leggja áherslu á akstursæfingar í myrkri því það er mjög erfitt að kenna hvernig nemendur eiga að keyra í dimmu. Nema kannski þessa mánuði núna,“ segir Þórður.
Græjan er af nýjustu gerð og búin fullkominni tækni. Blaðamanni Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins var hent á bak við stýrið og kolféll á öllum prófum. Bremsuviðbragð var slakt, bíllinn var of nálægt miðjulínu og svo kom í ljós að maður kann ekki að taka fram úr. Allt er mælt og tekið með í reikninginn. Niðurstaðan var sláandi slök fyrir Þingeying með mikið loft í lungunum. Spurning um að fara bara að taka strætó á ný.
Þeir hjá ökuskólanum vilja taka upp frönsku aðferðina þar sem ökunemendur eru skyldaðir til að eyða tíma í ökuhermi. Nái þeir að klára allar þær þrautir sem hermirinn leggur fyrir nemendum treystandi út á götur landsins – ekki fyrr. Á Íslandi er mikið unnið mikið með ungum og reynslulitlum ökumönnum og gerðar eru meiri kröfur en áður. Sem dæmi hefur dregið úr aðild ungra ökumanna að umferðarslysum úr 40% árið 1997 niður í 23% árið 2010. Að loknu ökunámi ættu umferðaróhöpp sem stafa af vanþekkingu, skorti á skilningi eða röngu viðhorfi ungra ökumanna að vera nánast undantekning. Hermirinn kemur þar að góðum notum.
Þórður segir að hermirinn muni nýtast öllum enda aðstæður á Íslandi töluvert sérstakar. Eigi ökumaður afmæli í júlí eða ágúst eru allar líkur á því að hann hafi aldrei fengið að aka í snjó, hálku eða vetrarmyrkri. Þá sé gott að eiga herminn til að leyfa nemendum að fá tilfinningu fyrir köldum vetrarakstri. „Krakkar í dag skilja miklu betur ef þau fá að sjá hlutina og sérstaklega á tölvuskjáum. Hér getum við sýnt þeim hvernig til dæmis kúpling virkar. Hvað gerist þegar viðkomandi ýtir á kúplinguna og setur í gír. Ökumenn eru því tilbúnir næst þegar kemur grænt á umferðarljósin.“
Þess má geta að rangt var farið með nafn Guðbrandar Bogasonar í myndatexta sem birtist í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag. Vegna mistaka var hann nefndur Björn Lúðvíksson.