Bílabúð Benna tekur við Opel umboðinu

Erna Gísladóttir forstjóri BL og Benedikt Eyjólfsson eigandi Bílabúðar Benna …
Erna Gísladóttir forstjóri BL og Benedikt Eyjólfsson eigandi Bílabúðar Benna handsala samning um framtíðarskipan Opel á Íslandi

Bílabúð Benna hefur í samstarfi við General Motors (GM), framleiðanda Opel og Chevrolet, komist að samkomulagi um að Bílabúð Benna taki við umboði fyrir Opel á Íslandi.

„Jú það er rétt, Bílabúð Benna mun taka við Opel á Íslandi, enda Opel í eigu General Motors, sem einnig framleiðir Chevrolet. Bílabúð Benna tekur yfir alla þjónustu við Opel viðskiptavini á næstunni,“ segir Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs BL ehf., í tilkynningu um þessar breytingar á bílamarkaðinum. 

Skúli segist jafnframt vilja nota tækifærið og þakka öllum Opel viðskiptavinum BL fyrir ánægjuleg viðskipti á liðnum árum.

„Það eru spennandi tímar framundan fyrir Bílabúð Benna. Við höfum náð flottum árangri með Chevrolet á undanförnum árum og nú bætum við Opel í okkar vöruframboð.  Við munum leggja áherslu á að veita Opel eigendum fyrsta flokks þjónustu hér eftir sem hingað til ásamt því að bjóða gott úrval bíla á samkeppnishæfum verðum,“ segir Benedikt Eyjólfsson, eigandi Bílabúðar Benna ehf.

Rætur Opel ná meira en öld aftur í tímann þegar Adam Opel lagði grunninn að fyrirtækinu. Í meira en 110 ár hefur Opel hannað bíla, undir einkunnarorðunum „Wir leben Autos“ eða „Við lifum fyrir bíla“.  Opel eru vinsælir um allan heim og á einnig farsæla sögu hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina