Að sögn lögreglu á Ísafirði og á Selfossi er umferð bíla farin að aukast. Þeir sem leggja leið sína á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum aka í gegnum Selfoss á leið sinni til Landeyjarhafnar og Mýrarboltinn er að sjálfsögðu á sínum stað á Ísafirði.
Ökumenn eru hvattir til að aka varlega, taka sér góðan tíma í ferðalagið og hafa góða skapið með í för.