Bílabúð Benna hefur að nýju hafið innflutning á jeppum frá SsangYong eftir nokkurra ára hlé.
Að sögn Benedikts Eyjólfssonar hefur Bílabúð Benna nýlega endurnýjað samning sinn við fyrirtækið og fengið fyrstu sendingu af glænýjum jeppum af gerðinni Rexton og Korando í salinn til sín.
„Við höfum haldið góðu sambandi við SsangYong í gegnum tíðina og njótum nú, sem fyrr, góðs af sérlega metnaðarfullri þróunarvinnu fyrirtækisins,” segir Benedikt. „Við hlökkum til að endurnýja kynni íslenska markaðarins af þessum frábæra framleiðanda og munum halda sérstaka sýningu á nýju jeppunum frá SsangYong í Chevrolet salnum, Tangarhöfða, nú á laugardaginn, frá kl. 12:00 til 16:00.”
Rexton er fullvaxinn, vel búinn jeppi á grind, með háu og lágu drifi. Nýi Korando jeppinn á vafalaust líka eftir að vekja athygli. Hann er fjórhjóladrifinn með 175 hestafla dísilvél og læsanlegu fjórhjóladrifi. Nýja Korando sportjeppanum hefur verið vel tekið þar sem hann hefur verið kynntur enda vel búinn og skemmtilegur bíll.
Í tilkynningu frá Bílabúð Benna segir, að verð beggja bílanna verði að teljast afar hagstætt. Beinskiptur Korando er á 4.990.000 krónur og fjórhjóladrifinn og sjálfskiptur Korando, sem er afar sjaldgæfur kostur í þessum flokki, er á 5.790.000 kr. Verðið á Rexton er 6.990.000 kr.