Honda hefur birt myndir af nýrri kynslóð HR-V jepplingsins sem seldur hefur verið í Japan undir módelheitinu Vezel.
Með hinum nýja HR-V, sem frumsýndur verður á Parísarsýningunni í október, stefnir Honda inn á markað fyrir jepplinga í Evrópu en þar ríkir hörð samkeppni.
Að ytra útliti svipar HR-V til annarra Hondabíla með skörpum og kraftmiklum línum er tengja yfirbygginguna í eina samstæða heild. Svipar henni og að lögun til tveggja dyra bíla.
Bensíntankinn er að finna í miðjum bílnum sem stuðlar að auknu innra rými sem mun vera með því betra í bíl af þessari stærð.
Búist er við Honda HR-V á götuna í Evrópu á næsta ári.