Nýjasta tromp Toyota, ný kynslóð af smábílnum Aygo, var kynnt hjá Toyota á Íslandi við Kauptún síðastliðinn laugardag.
Aygo, sem er neyslugrannur borgarbíll í A-flokki sem fyrr, er mikið breyttur bæði að útliti sem innanstokks og fjölmargir þekktust boð Toyota um að kíkja inn og berja nýja bílinn augum.
Fjallað var um hinn nýja Aygo í reynsluakstursgrein í Bílablaði Morgunblaðsins í gær.