Blóðþrýstingsmælir á umferðina

Ragnar setti myndavélina upp í morgun.
Ragnar setti myndavélina upp í morgun. mbl.is/ Júlíus

Ný færanleg hraðamyndavél var sett upp í dag á gatnamótum Sæbrautar og Langholtsvegs. Er þetta fyrsta færanlega hraðamyndavélin sem keypt er til landsins um nokkurt skeið og mun hún búin nýjustu tækni til að standa umferðarþrjóta að verki. Vélin er ljósleiðaratengd og er efni úr henni sent til Stykkishólms þar sem unnið er úr því. 

„Þetta er öflug vél sem kemur til með að fylgjast bæði með hraða og rauðu ljósunum. Hún getur þá mælt hvort ekið sé of hratt, hvort ekið sé yfir á rauðu ljósi og þegar bæði er gert í einu svo hún eirir engu þessi vél,“ segir Ragnar Þór Árnason, vaktstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar.

Ragnar segist vonast til þess að myndavélin stuðli að því að fækka umferðarslysum. „Það er ekki nóg að sekta, við viljum vita hvað liggur á bak við brotin. Hversu mörg prósent af ökumönnum óku yfir okkar afskiptahraða og á hvaða tíma sólarhrings og þá getum við einbeitt okkur að því tímabili þar sem brotin eru flest.“

Ragnar segir tölfræðina frá vélinni nýtast lögreglunni afar vel við að stýra því hvar og hvenær lögreglan sinnir sýnilegri löggæslu. Hann bendir á að margir hafi talið að mest væri um umferðarbrot á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á morgnana og síðdegis en að þegar gögn úr myndavélum voru skoðuð hafi komið í ljós að mesti hraðaksturinn væri milli 12 og 15 á daginn.

 „Það eru þannig upplýsingar sem við nýtum mest og þær eru nauðsynlegar fyrir okkur til þess að við séum að verja tíma okkar rétt. Við lítum á það þannig að þegar maður fari til læknis athugi hann oft fyrst blóðþrýstinginn og þetta er svona blóðþrýstingsmælir okkar á umferðina“

Ragnar segir enn ekki ákveðið hvert vélin fari næst og hvenær enda sé lögreglan enn að þreifa sig áfram í því hvar hún sé best niðurkomin á hverjum tíma.

mbl.is