Orka náttúrunnar hefur nú opnað hraðhleðslustöð við Fríkirkjuveg í samstarfi við Reykjavíkurborg. Stöðin er sú fyrsta í miðborginni en sú níunda sem Orka náttúrunnar setur upp á árinu. Orka náttúrunnar er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur.
Nýting stöðvanna hér á landi er tvöfalt meiri en í Noregi, segir í tilkynningu.
Það var Pétur Viðar Elínarson, rekstrarfulltrúi hjá sorphirðu Reykjavíkurborgar, sem fékk fyrstu hleðsluna úr stöðinni. Hann notar rafmagnsbíl við störf sín en næstum níu af hverjum tíu bílum sem Reykjavíkurborg rekur eru knúnir umhverfisvænni orku, metangasi eða rafmagni.
Pétur Viðar og aðrir sem nota rafmagnsbíl til að komast á milli staða geta hlaðið bíla sína að 80% á 20-30 mínútum á hraðhleðslustöð.
Hraðhleðslustöðvar Orku náttúrunnar eru einu slíku stöðvarnar sem settar hafa verið upp hér á landi fyrir almenna notkun.
Mikil nýting stöðvanna
Á rafbílaráðstefnu, sem haldin var á dögunum, kom fram í erindi Páls Erland, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, að nýting stöðva fyrirtækisins er tvöfalt meiri en samsvarandi stöðva í Noregi. Norðmenn eru sú þjóð sem lengst er komin í rafbílavæðingu, enda rík af raforku frá endurnýjanlegum orkugjöfum, rétt eins og Íslendingar.
Í Noregi eru um 36.000 rafbílar og liðlega 100 hraðhleðslustöðvar. Hér nálgast rafbílarnir að verða 200 talsins og hraðhleðslustöðvarnar nú níu að tölu. Nýting stöðvanna hér á landi fyrstu níu mánuði þessa árs svarar til þess að hver rafbílaeigandi hafi notað hana 14½ klukkustund. Samsvarandi tala fyrir Noreg er 7½ tími.
Netið þéttist
Með samningi við BL, sem gerður var á síðasta ári, tók Orka náttúrunnar að sér uppsetningu og rekstur tíu hraðhleðslustöðva sem BL og Nissan Europe lögðu til, rafbílaeigendum að kostnaðarlausu til að byrja með.
Orka náttúrunnar lítur á þetta sem tilraunaverkefni til að stuðla að útbreiðslu á rafbílum og auka tiltrú fólks á þeim sem valkosti. Þeim var valinn staður með hliðsjón af því að flestir rafbílaeigendur eru á höfuðborgarsvæðinu. Með því að setja upp stöðvar þar og mynda einskonar krans um höfuðborgarsvæðið þjónuðu stöðvarnar best þessum tilgangi.
Stöðvarnar eru við Bæjarháls, Sævarhöfða, hjá Skeljungi við Miklubraut og nú við Fríkirkjuveg í Reykjavík, við Smáralind í Kópavogi, IKEA í Garðabæ, á Fitjum í Reykjanesbæ, hjá N1 Borgarnesi og Olís á Selfossi. Næsta stöð verður sett upp á Akranesi.