Færri bílar fara um götur borgarinnar á nagladekkjum en áður. Þrátt fyrir ófærð og hálku í desember 2014 fjölgaði ekki nagladekkjum. 70% bílstjóra velja aðra kosti en nagladekk undir bíla í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Hlutdeild negldra dekkja í Reykjavík var 31% í desember en 69% bíla reyndust á ónegldum samkvæmt niðurstöðum talningar sem gerð var 17. desember. Á sama tíma árið 2013 voru 32% bíla á negldum hjólbörðum og 33% árið 2012.
Talning 13. nóvember sl. sýndi að 25% bíla voru á negldum dekkjum en var 28% á sama tíma árið áður. Hlutdeild negldra hjólbarða verður því minni með hverju árinu sem líður.
Reykjavíkurborg mælir ekki með nagladekkjum á götum borgarinnar m.a. sökum hávaða- og svifryksmengunar en auk þess eyða nagladekk malbiki hundraðfalt meira en önnur dekk. Þá eyða bifreiðar á negldum dekkjum meira eldsneyti en á ónegldum.
Nagladekk eru leyfileg í Reykjavík á tímabilinu 1. nóvember til 15. apríl.
Dýpt mynsturs í hjólbörðum hefur áhrif á hversu gott grip þeirra er en í nýrri reglugerð um gerð og búnað ökutækja er krafist þriggja millimetra lágmarksdýptar mynsturs á vetrardekkjum fólksbifreiða.