Fjölgun í Golf fjölskyldunni

Golf Variant.
Golf Variant.

Volkswagen frumsýnir á morgun, laugardaginn 10. janúar nýjan meðlim Golf-fjölskyldunnar, eða Golf Variant.

Í tilkynningu frá Heklu, umboðsfyrirtæki Volkswagen á Íslandi, segir að Golf Variant sé  einstaklega hagnýtur skutbíll, með nægu farangursrými og búinn fullkomnum þægindum.

„Við hönnun Golf Variant var lögð mikil áhersla á að halda hinu vinsæla útliti Golf, en um leið að bjóða bíl sem svarar þörfum þeirra sem þurfa aukið rými. Golf Variant getur annast flesta flutninga fjölskyldunnar með 605 lítra og 180 cm langt rými aftur í þegar sæti eru lögð niður.

Golf Variant hefur einnig fjölmarga aðra glæsilega og þægilega kosti. Sportlegar útlínur bílsins eru sérstaklega áberandi og fangar afturendinn svo sannarlega augun. Fyrir þá sem eru alveg komnir með nóg af klaka og móðu á framrúðunni eftir langan og kaldan vetur má benda á að í Golf Variant er hægt að fá upphitaða framrúðu. Einnig er hægt að fá rafstýrða sóllúgu sem er eykur enn á þægindin,“ segir Hekla.

Sýningin á Golf Variant stendur yfir frá klukkan 12 til 16 hjá Heklu á Laugavegi 170-174.

Mjög bjart er í Golf Variant.
Mjög bjart er í Golf Variant.
Golf Variant
Golf Variant
Innan- og farangursrýmið er gott í Golf Variant.
Innan- og farangursrýmið er gott í Golf Variant.
mbl.is

Bloggað um fréttina