Það verður áhersla á fjórhjóladrif um komandi helgi hjá BMW. Ásamt frumsýningu á sportjeppanum BMW X6 verða sýndir allir fjórhjóladrifnir bílar frá BMW í xDrive línunni.
BMW X6 er ekki hefbundinn fjórhjóladrifinn jeppi þó að hann sé byggður á undirvagni BMW X5, því eins og coupe-laga útlit hans bendir til minnir X6 bíllinn meira á sportbíl en þó með alla eiginleika hins vinsæla BMW X5.
„Sígild og sportleg hönnun yfirbyggingar er hugsuð fyrir þá kaupendur sem vilja leyfa sér að vera svolítið öðruvísi án þess að sætta sig við að vera án eiginleika sem góðir jeppar hafa. Þannig sögðu t.d. blaðamenn Car and Driver í umsögn um nýjan X6 að þar færi bíll sem geislaði af ærslafullum krafti á sama tíma og hann byggi yfir ótrúlegri lipurð,“ segir í tilkynningu frá BL, umboðsfyrirtæki þýska lúxusbílasmiðsins á Íslandi.
BMW X6 30d xDrive bíllinn sem BL frumsýnir um helgina er búinn þriggja lítra 258 hestafla dísilvél sem togar 560 Nm sem er með því besta sem gerist í þessum stærðarflokki. Uppgefin eldsneytisnotkun í blönduðum akstri er um 6,7 lítrar/100 km.
Sjálfskiftingin er átta þrepa Steptronic með Ecopro, Sport og Comfort stillingum fyrir ökumann að velja úr eftir akstursaðstæðum og hve mikla skemmtun ökumaður vill fá út úr akstrinum í ökuferðinni. Hröðun úr 0 í 100 km hraða er 6,7 sekúntur. BMW X6 er einnig hægt að fá í M50d xDrive útgáfu sem er með 381 hestafla díslilvél sem er ekki nema 5,2 sekúntur í hundarað.
Frumsýning X6 á laugardag stendur milli kl. 12 og 16 og eins og áður kom fram verða allir bílarnir í xDrive línunni til sýnis og reynsluaksturs. Við sama tækifæri verða allir sýningar- og reynsluakstursbílar BMW hjá BL boðnir á sértilboði á laugardaginn.