20 þúsund fyrir að leggja í stæði fatlaðra

mbl.is/Eyþór

Sekt fyrir að leggja ökutæki ólöglega í merkt stæði fyrir bifreiðir fatlaðs fólks mun hækka úr 10 þúsund krónum í 20 þúsund krónur. Sektir fyrir önnur stöðubrot hækka úr 5 þúsund krónum í 10 þúsund krónur. Gjaldskrárbreytingin tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

Borgarstjórinn í Reykjavík hefur óskað eftir staðfestingu innanríkisráðherra á hækkun stöðvunarbrota í Reykjavík en samkvæmt umferðarlögum ákveður sveitarstjórn fjárhæðina í gjaldskrá sem ráðherra staðfestir. Á þetta við þegar álagning fer fram á vegum sveitarfélags.

Á fundi borgarráðs þann 2. október 2014 var tillaga bílastæðanefndar borgarinnar frá 12. september 2014 um hækkun stöðubrotsgjalda samþykkt.

Annars vegar er um að ræða stöðubrotsgjald vegna banns við að leggja ökutækjum nema á sérstaklega merktum stæðum, að eigi megi stöðva eða leggja ökutæki á gangstétt, gangstíg, umferðareyju, á gangbraut, gatnamótum, í merktu stæði fyrir leigubifreiðar eða á biðstöð fyrir hópbifreiðar. Gjald vegna brots gegn ofangreindu mun hækka úr 5.000 kr. í 10.000 kr.

Hins vegar er um að ræða stöðubrotsgjald vegna brots ef ökutæki er lagt í merkt stæði fyrir bifreiðir fatlaðs fólks. Gjald vegna brots gegn ákvæðinu mun hækka úr 10.000 kr í 20.000 kr.

Gjaldskrárbreytingin tekur gildi við birtingu í Stjórnartíðindum.

mbl.is

Bloggað um fréttina