Askja annar ekki eftirspurn eftir Kia Soul EV

Rafbíllinn Kia Soul EV.
Rafbíllinn Kia Soul EV.

Svo mik­il og ör hef­ur sala verið á raf­bíln­um Kia Soul EV í Nor­egi að birgðir hafa gengið til þurrðar. Sömu sögu er að segja hér á landi og Bílaumboðið Askja, umboðsaðili Kia á Íslandi, hefur ekki náð að anna eftirspurn eftir rafbílnum.

„Það hefur verið mjög mikil eftirspurn eftir Kia Soul, bæði í raf- og dísilútfærslum, og það má segja að Soul hafi runnið út eins og heitar lummur. Við fáum ekki þann fjölda sem við þurfum af bílum og rafútgáfan Soul EV hefur selst jafn óðum og hann hefur komið í hús til okkar. Þetta er enda afar vel búinn bíll, líklega best búni rafbíllinn á markaðnum miðað við verð,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

Kia Soul EV kostar 4.490.777 og vísa sjöurnar í 7 ára ábyrgð Kia.

Í tilkynningu frá Öskju segir, að sala á Kia hafi gengið mjög vel hér á landi undanfarin ár og í  ár er Kia annað mest selda merkið á landinu á eftir Toyota.

„Við erum með tæplega 9,5% markaðshlutdeild, þá hæstu hjá Kia í Evrópu. Við erum að skrá Kia bíl númer 1.000 á allra næstu dögum og er það í fyrsta skipti sem við förum yfir 1.000 bíla á einu ári,“ segir Þorgeir ennfremur.

mbl.is

Bloggað um fréttina