Sjö manna rafbíll fyrir stórfjölskyldu

Skúli Steinn Vilbergsson, sölufulltrúi hjá BL, afhendir Axel Axelssyni og …
Skúli Steinn Vilbergsson, sölufulltrúi hjá BL, afhendir Axel Axelssyni og Svanhvíti Sverrisdóttur 7 manna rafbílinn frá Nissan.

„Það var ekki bara rýmið, við horfðum ekki síður til lægri rekstrarkostnaðar sem rafmagnsbíllinn kemur til með að færa okkur samanborið við jafnstóran bíl með hefðbundinni vél.“

Þetta segja Axel Axelsson og Svanhvít Sverrisdóttir um þá ákvörðun sína að festa kaup á sjö manna rafbíl af gerðinni Nissan eNV200, sem er eini rafbíllinn sem boðinn er með svo mörgum sætum. Bíllinn er jafnframt tvöhundraðasti rafbíllinn sem BL afhendir frá því að fyrirtækið hóf sölu og markaðssetningu rafmagnsbíla.

Axel og Svanhvít eiga fjögur börn og segja þau að nú hafi þau meiri þörf fyrir aukið pláss fyrir allt sem fylgi stórri barnafjölskyldu á ferð og flugi. Nú þegar eru nokkrir rafbílar af gerðinni eNV200 í sendibílaútgáfu komnir í vinnu á höfuðborgarsvæðinu en bíll Axels og Svanhvítar er sá fyrsti sem afhentur er í sjö manna fjölskylduvænni útfærslu.

Mikill vöxtur í rafbílasölu

Mikill vöxtur er í sölu rafbíla hér á landi. Þannig var rafbílasalan í heild um 148% meiri 2014 en 2013 og í ár stefnir í 100% söluaukningu miðað við árið í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá BL. Þegar umboðið hóf sölu á rafbílnum Nissan Leaf árið 2013 voru einungis um 20 rafbílar í umferð á Íslandi. Um næstu áramót er áætlað að skráðir rafbílar á götum landsins verði orðnir um 700, þar af rúmlega 400 af tegundinni Nissan og Renault.

Í tilefni loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem nú stendur yfir í París, segir BL ástæðu til að fagna þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur með aukinni sölu rafbíla á Íslandi. „Rafbílar gegna mikilvægu hlutverki í loftslagsmálum auk þess að vera fjárhagslega hagkvæmur kostur fyrir stóran hóp bíleigenda.“

Aukin samkeppni af hinu góða

Til að styðja við uppbyggingu nauðsynlegra innviða í rafbílavæðingu Íslands hófu Nissan í Evrópu, Orka náttúrunnar og BL samstarf um uppsetningu tíu hraðhleðslustöðva á höfuðborgarsvæðinu og nærsveitarfélögum á árinu 2013. Eiga þær án efa sinn þátt í vaxandi vinsældum rafbíla hérlendis og segir Loftur Ágústsson, markaðsstjóri BL, afar jákvætt hversu flest bílaumboðanna hér á landi taki virkan þátt í rafbílavæðingunni. „Gott úrval rafmagnsbíla frá mörgum framleiðendum er til hagsbóta fyrir markaðinn í heild, ekki síst neytendur með mismunandi þarfir,“ segir Loftur.

BL býður rafbíla í mismunandi útfærslum frá tveimur framleiðendum. Þar er um að ræða Nissan Leaf sem er vinsælasti og mest seldi rafbíllinn hér á landi eins og annars staðar í heiminum hjá bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Nissan býður einnig rafmagnsbílinn eNV200 eins og þann sem Axel og Svanhvít hafa fest kaup á, auk þess sem sá bíll er einnig boðinn sem sendibíll. Loks má nefna Renault sem býður Kangoo-rafbíl í sendibílaútfærslu.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina