Tæplega 1.500 bílar seldust á hinum svokallaða gráa bílamarkaði fyrstu fjóra mánuði þessa árs, bílar sem fluttir eru inn framhjá bílaumboðunum. Þessi tala bendir til þess að vöxtur á þessum markaði sé hraður.
Í fyrra voru til samanburðar keyptir 3.700 bílar á þessum markaði en 1.200 árið þar áður. Inni í þeim tölum eru notaðir bílar.
Samkvæmt heimildum ViðskiptaMoggans færist í aukana að nýir og nýlegir bílar séu fluttir inn af einstaklingum og fyrirtækjum með þessum hætti, og sérstaklega virðist vera vinsælt að flytja inn nýlega rafmagns- og tengiltvinnbíla.