Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna, segir að leita þurfi samanburðar við olíuríki til að finna jafnmikla sölu á Porsche-bílum miðað við höfðatölu og á Íslandi. Hann óttast að umboðið muni ekki geta flutt inn nógu marga Porsche-bíla í ár til að anna eftirspurn.
BL hefur opnað nýjar höfuðstöðvar fyrir Jaguar og Land Rover. Íris B. Ansnes framkvæmdastjóri Jaguar Land Rover á Íslandi segir í Morgunblaðinu í dag, að með tilliti til hagsveiflunnar eigi sala til einstaklinga mikið inni.
„Við teljum að þetta ár verði mjög gott í sölu lúxusbíla. Kaupmáttur er góður sem og andinn í þjóðfélaginu. Við teljum okkur því vera með rétta vöru á réttum tíma,“ segir Íris.