Fimmti hver breskur bíleigandi myndi glaður borga sérstakan holuskatt ef það mætti verða til að leysa „holukreppuna“ eins og holumyndun á breskum vegum er kölluð.
Þetta er niðurstaða könnunar á vegum Motorpoint, helstu óháðu bílasölu landsins. Hún vísar til könnunar Green Flag, sem veitir biluðum bílum á götum úti hjálpar- og viðgerðarþjónustu.
Í henni segir, að árlega borgi bíleigendur rúma fjóra milljarða punda í viðgerðir vegna tjóns sem rakið er til holanna.
Áætlað hefur verið að það myndi kosta 9,8 milljarða punda að uppræta malbiksholur á breskum vegum. Verkið tæki um áratug.
Alls eru 32,9 milljónir manna með gilt ökuskírteini í Bretlandi. Miðað við það þyrfti hver skírteinishafi að borga 239 pund í holuskatt sem rukkaður yrði aðeins einu sinni.
Holuvandinn hefur verið viðvarandi og samgöngunefnd breska þingsins lýsti honum á dögunum sem þjóðarhneyksli. Árlega tilkynnir almenningur um 500.000 vegholur, að sögn konunglega bíleigendafélagsins (RAC).