Síðasti Saab bíllinn sem rann af færiböndum samsetningarsmiðju sænska bílsmiðsins er á leiðinni á uppboð.
Tímamótabíllinn, módelið 9-3 Aero, hefur aðeins verið keyrður 60 kílómetra. Ástæða þess er að hann hefur lengstum verið hafður til sýnis í Saab-safninu í Trollhättan í Svíþjóð
Að sögn uppboðshaldarans, Bilweb, hefur bílnum aðeins verið ekið á prófunarbraut við bílsmiðjuna í Trollhättan og annars staðar á verksmiðjusvæðinu.
Þegar bíllinn sá dagsins ljós var kínverska rafbílafyrirtækið NEVS orðið eigandi Saab-fyrirtækisins. Hóf það smíði á endurbættum 9-3 Aero árið 2013 en hætti henni svo undir árslok 2014. Aðeins voru smíðaðir 420 bílar.
Bíllinn er metinn á milli 350 til 450 þúsund sænskra króna, jafnvirði 4,4 til 5,7 milljóna íslenskra. Hann er knúinn tveggja lítra og fjögurra strokka bensínvél með áfastri sjálfskiptingu. Lakkið er sagt demantssilfrað.