Fyrsti jeppi Aston Martin rann í forliðinni viku af færiböndum nýrrar bílsmiðju í Wales sem sérstaklega var reist til smíði nýja DBX-jeppans.
Vegna viðvarandi erfiðleika í rekstri og sölu bindur bílsmiðurinn miklar vonir við nýju samsetningasmiðjunnar í Gaydon í Wales. Takist vel til og renni bíllinn út hefði það viðsnúning í för með sér.
Hljóti DBX-jeppinn hins vegar dræmar undir gæti það allt eins orðið til að Aston Martin líði undir lok, svo mikið er í húfi.