Nýr S-Class tengiltvinnbíll dregur 113 km

Nýr S-Class 580 Mercedes-Benz.
Nýr S-Class 580 Mercedes-Benz.

Nýr Mercedes-Benz S-Class í tengiltvinnútfærslu er nú kominn í sölu í Evrópu sem og á Íslandi. Nýr S-Class 580 e er með allt að 113km drægi á rafmagninu eingöngu samkvæmt WLTP staðli.

Hefur drægið aukist um rúmlega helming miðað við eldri útfærslu bílsins. Þá býður bíllinn upp á 11kW hleðsðslugetu með hefðbundinni og 60 kW hraðhleðslugetu sem er það mesta meðal tengiltvinnbíla.

S-Class er flaggskip fólksbílaflota Mercedes-Benz og hefur bíllinn verið leiðandi í lúxus og tækni í gegnum árin.

Nýja tengiltvinnútfærsla bílsins er allt í senn langdrægari, aflmeiri og enn sparneytnari. Bíllinn er með 367 hestafla V6 bensínvél ásamt 150 hestafa rafmótor. Samanlagt er því drifrásin 510 hestöfl og  togið er alls 750 Nm. „Það er því gríðarlegt afl í þesari útfærslu S 580 e. Bíllinn rýkur úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 5,2 sekúndum. Hámarkshraði bílsins er 250 km/klst.,“ segir í tilkynningu.

Nýr S-Class er með fjórðu kynslóð af kerfi tengiltvinnbíla sem Mercedes-Benz hefur þróað. Bíllinn er vel búinn aksturs- og öryggiskerfum og með hátæknivæddan búnað sem gerir það að verkum að bíllinn getur stýrt sér að talsverðu leyti sjálfur þótt ökumaður sitji vissulega í ökumannssætinu og passi upp á að allt sé í lagi. Bíllinn er búinn miklum lúxus og þægindum eins og áður. Hann er m.a. með nýrri kynslóð MBUX afþreyingakerfisins.

Nýr S-Class og hinn nýi rafbíll EQS verða smíðaðir í verksmiðju Mercedes 56 í Sindelfingen, nálægt Stuttgart þar sem höfuðstöðvar þýska lúxusbílaframleiðandans eru til húsa.

S 580e er í boði í tveimur útfærslum með stutt hjólhaf sem og langt. Samkvæmt verðlista bílaumboðsins Öskju kostar bíllinn frá 21.990.000 kr.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Loka