Réttur vökvi á rafstýrisdælu Spurt: Veist þú hvaða vökva á að nota á stýrisdælu í Opel Astra 2000 árg? Ég held að stýrisdælan sé rafknúin. Svar: Notaður er sérstakur grænn glussi, staðalnúmer 90544 116. Þú átt að fá hann hjá Poulsen, N1 eða umboðinu.

Réttur vökvi á rafstýrisdælu

Spurt: Veist þú hvaða vökva á að nota á stýrisdælu í Opel Astra 2000 árg? Ég held að stýrisdælan sé rafknúin.

Svar: Notaður er sérstakur grænn glussi, staðalnúmer 90544 116. Þú átt að fá hann hjá Poulsen, N1 eða umboðinu. Þegar þú spyrð um þennan vökva skaltu taka fram að hann sé fyrir rafknúna stýrisdælu (rafstýri) eins og í VW Polo og Skoda Fabia en ekki venjulegt vökvastýri.

MM-skipting, handskipting og CVT-skipting

Spurt: Myndir þú ráðleggja mér að kaupa Toyota Yaris eða Auris með sjálfskiptingu sem þeir nefna MMT en ég er að velta fyrir mér kaupum á 3-4 ára bíl? Tek ég meiri áhættu með þá sjálfskiptingu heldur en handskiptingu í bíl sem væri jafn mikið ekinn? Ég hef slæma reynslu af CVT-skiptingu í Toyota Prius – eru þær skiptingar (CVT) öruggari í Nissan?

Svar: Ég tel að bílvirkjar, sem þekki til sjálfskiptinga, séu mér sammála um að það sé villandi, ef ekki rangt, að telja MM-gírskiptingu vera sjálfskiptingu. Að mínu mati væri réttara að nefna hana gírkassa með sjálfvirkri, tölvustýrðri kúplingu. Ég myndi ekki ráðleggja nokkrum að velja MMT-gírskiptingu í stað hefðbundinnar handskiptingar. Eftir að hafa skoðað þennan búnað tel ég MMT-gírskiptingu lítt traustvekjandi og yrði ekki hissa þótt hún ætti eftir að verða uppspretta margra bilana. Varðandi þrepalausu CVT-sjálfskiptinguna í Prius mun það vandamál hafa tengst galla í rafkerfi í eldri árgerðum sem ráðin hefur verið bót á. Ástæða er til að benda á að allir nýir Toyota-bílar eru seldir með 5 ára ábyrgð.

Ég hef ekki séð tæknilegan samanburð á CVT-skiptingum í Toyota og Nissan. Nissan hefur lengst allra bílaframleiðenda lagt áherslu á að þróa CVT enda eykur sú tækni sparneytni bíls um 10% miðað við 6 gíra sjálfskiptingar af fullkomnustu gerð; – atriði sem vegur stöðugt þyngra með strangari reglum um mengunarvarnir og auknum kröfum um sparneytni. Eftir endurbætur mun bilanatíðni CVT-skiptinga í Nissan-bílum, af árgerð 2006 og yngri, hafa minnkað verulega og munu þær nú þola samanburð í því efni við það sem best gerist hjá hefðbundnum sjálfskiptingum.

Tölvan fyrir „Air-bags“ biluð: Gjaldþrot?

Spurt: Tölvan fyrir öryggispúðana (Air-bags) er biluð í Opelnum mínum. Ég hef heyrt að hún kosti meira en gangverð bílsins hjá umboðinu! Ég hafði samband við Varahlutalagerinn í Kópavogi, en þeir senda vélartölvur út til viðgerðar, en var sagt að þeir tækju ekki að sér viðgerðir á tölvum sem stýrðu öryggisbúnaði og að það hefði eitthvað með ábyrgð að gera. Eru einhverjir aðrir sem taka að sér milligöngu um viðgerðir á svona búnaði?

Svar: Vaka hf. í Súðarvogi í Reykjavík hefur sent tölvubúnað fyrir vélar, skiptingar, ABS og öryggispúða utan til viðgerðar (þeir hafa einnig haft milligöngu um viðgerðir á mælaborðum og sparað fólki stórfé). Eftir að nýir eigendur tóku við IH/BL hefur verið boðið upp á ódýrari rafeindabúnað (skynjara, tölvur og fleira) frá eftirframleiðendum og jafnframt viðgerðarþjónustu á tölvum. Ég ráðlegg þér að kynna þér þjónustuna hjá þessum tveimur fyrirtækjum. Enn og aftur sé ég ástæðu til að minna á að hvorki ABS-læsivörn né Airbag-öryggispúðar eru skyldubúnaður í bílum. Skoðun án athugasemda fæst því, lýsi viðeigandi viðvörunarljós.

Rokgjarn vökvi

Þegar maður fyllir á bensíngeymi bíls skiptir máli að fara sér að engu óðslega. Bensín er rokgjarn vökvi. Sé honum dælt með hámarksafköstum, það er gikkurinn spenntur í botn, hvirflast vökvinn og frussast; uppgufun verður meiri en sé hægar dælt. Sé 50 lítrum dælt á bíl og 5% magnsins rjúka út í loftið hefurðu greitt fyrir 50 lítra en einungis fengið 47,5 lítra og tapað 600 kr.!

Leó M. Jónsson véltæknifræðingur leoemm@simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt. Eldri spurningar og ítarlegri svör eru birt á www.leoemm.com)